Æfingabúðir á Spáni
Við Sigrún komum hingað til Quesada á miðvikudagskvöldið og var grenjandi rigning sem greinilega hreinsaði loftið því það er búin að vera sól síðan. Við komum með háleit markmið að sinna mataræði og hreyfingu og er ekki hægt að segja annað en að við höfum tekið hraustlega á því. Við erum búin að hlaupa úti og síðan innrituðum við okkur í ræktina hans Howard þar sem ég átti reyndar prógram sem þurfti að uppfæra. Okkur líður ljómandi vel að æfa þarna og förum í sauna og nuddpott á eftir svo það er ekki hægt að kvarta yfir neinu nema að það er erfitt að vakna á morgnana til að hlaupa. Meiningin er að halda dampi í æfingunum þangað til Stefán kemur og síðan ætlum við að keyra til Marbella áður en við komum heim eftir Verslunamannahelgi.
Þegar ég var búinn að hlaupa í morgun og lyfta lóðum í ræktinni þá var mér öllum lokið og lognaðist útaf í sófanum þegar við loks komumst heim eftir smá búðarráp. Ég ætla því að halda hvíldardaginn heilagan á morgun!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home