föstudagur, ágúst 01, 2008

Sæludagar í sólinni

Þá er æfingabúðunum hér á Spáni að ljúka þar sem við Sigrún höfum verið dugleg að hreyfa okkur og fara í ræktinu. Sigrúnu þó sýnu duglegri en ég. Við er tekin vika þar sem við tókum á móti Stefáni og héldum upp á afmælið hans með grillveislu. Reyndar varð minna úr grillinu því við keyptum of lítið af kolum og þurftum að bíða svo lengi út á velli að það voru rétt bökuðu kartöflurnar sem náðu að eldast á grillinu. Við höfðum blásið upp blöðrur og skreytt svo að engu að síður voru þetta fagnaðarfundir og Stefán átti enn eina sérstaka afmælisveisluna. Við og/eða hann höfum oftar en ekki verið á einhverju ferðalagi, hvort heldur hérlendis eða erlendis á afmælisdaginn hans svo þessi dagur verður oftar en ekki sérstakur fyrir vikið.

Við feðgarnir drifum okkur út á golfvöll í gær og spiluðum 9 holur og svo 18 í dag. Þrátt fyrir að ég væri að ná mínum besta árangri þá dugði það ekki til að vinna Stefán, sem hafði mig undir báða dagana. Hann fann sig heldur betur með hybrid kylfunni minni og var ótrúlega stöðugur í spilamennskunni. Ég er samt ánægður með spilamennskuna hjá mér og finn að þetta er alltaf að verða betra þótt alltaf megi gera betur.

Stefnan er sett á Marbella í fyrramálið og þar þiggjum við heimboð og verðum líklega á leiðinni til baka hingað til Quesada á mánudag. Við fljúgum síðan heim til Íslands á miðvikudagskvöld og komum aðfaranótt fimmtudagsins.

Það er aðeins einn skugga sem hefur borið á sólardvölina því vinkona okkar, hún Ragga, lést á sunnudagskvöldið eftir erfið og langvarandi veikindi. Hugur okkar er því við góðar minningar frá samverunni með Röggu og samúðarkveðjur til Jóns og barnanna. Missir þeirra er mikill.

1 Comments:

At laugardagur, 02 ágúst, 2008, Blogger Anna C said...

Gaman að heyra með veisluna

Leiðinlegt að heyra með röggu. Hún var yndisleg kona og fólk mun sakna hennar.

 

Skrifa ummæli

<< Home