Siglt í Noregi
Afþreyingaþema ráðstefnunnar í Osló var siglingar. Gamanið byrjaði á fimmtudaginn þegar það var keyrt niður að höfn og þar fórum við í galla og vesti og síðan um borð í gúmmíhraðbáta, kallaða RIBS, og voru 10 farþegar á hverjum báti. Síðan var brunað út Oslófjörðinn og reyndi aldeilis á þegar bátarnir fóru á öldur því þá skelltust þeir niður svo hristingurinn var alger. Til allrar blessunar var sléttur sjór svo þeir sem stýrðu bátunum brugðu á það ráð að sigla í kjölfarinu á stórri ferju og þá gátu þeir hossast að vild. Það var frábær skemmtun að sigla á þessum bátum og gaman að sjá byggðina út með fjörðinum, þ.á.m. litlu baðhúsunum. Ferðinni var heitið áleiðis til Tonsberg þar sem biðu okkar seglskútur því það átti að fara fram siglingakeppni, regatta. Þegar komið var um borð í skúturnar beið okkar nesti og drykkjarföng. Síðan var ræst í siglingakeppnina. Þá kom babb í bátinn því það var nákvæmlega enginn vindur og skúturnar rak hægt. Ákveðið var að stytta vegalengdina sem átti að sigla og marklínunni. Þetta kom skútunni sem ég var á sérstaklega illa því mínir menn voru með taktík í gangi sem krassaði illilega í logninu en skúta sem hafði í upphafi ekki komist lönd né strönd fékk fyrstu goluna og náði þannig forystunni þann stutta spöl sem siglt var og sigraði með nokkrum yfirburðum. Mín skúta var í fjórða sæti af sjö en hefði átt skilið annað sætið, sem ekki varð. Svo var siglt í land í Tonsberg og var víkingaskipið Gaya í för. Um kvöldið var heilmikil víkingaveisla í tjaldi við kastala sem er við bæinn. Þar varð ég heldur betur vitni að því hvernig Norsarar eru að stela víkingaöldinni frá okkur og eignuðu sér meira að segja Hávamál. Þótti mér Bleik brugðið. Sagðí ég borðfélögum mínum að ég væri sá eini á staðnum sem talaði upphaflega víkingamálið.
Á föstudeginum var svo flogið til Stavanger þar sem farið var um borð í skipið Lysnes sem sigldi með okkur inn Lysefjord og þar skoðuðum við hrikalega náttúrufegurð sem meðal annars fólst í sérstökum kletti sem kallaður er Prakkestolen vegna þess hvernig hann er í laginu. Á skipinu voru þeir kynningar fyrirtækja sem enn voru eftir og var aðstaðan til slíkra verka heldur bágborin. Þetta blessaðist nú allt saman og var einnig þetta fína hlaðborð í hádeginu. Loks var kveðjukokteill áður en komið var aftur til hafnar og hver hélt til síns heima. Hjá mér lá fyrir að fljúga til Amsterdam að hitta félaga úr DBA náminu í Henley sem er siður sem við byrjuðum með í fyrra á Íslandi.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home