Mest lesinn !!!

Það var send út fréttatilkynning frá Frumtak á fimmtudag um ráðninguna mína. Eini fjölmiðillinn sem pikkaði þetta upp strax var vefurinn hjá Viðskiptablaðinu. Ég tók eftir því á föstudeginum að fréttin var komin í kassann “Mest lesið” í þriðja sæti. Þetta varð spennandi eftir því sem leið á daginn því ég komst í annað sætið rétt eftir hádegi og svo náði ég fyrsta sætinu í rúman klukkutíma eftir tvöleytið. Svo komu auðvitað ný tíðindi sem veltu mér niður listann. Samt var gaman að fylgjast með þessu og ljóst að margir hafa lesið fréttina enda margir óskað mér til hamingju með starfið.
Sjá: http://www.vb.is/frett/3/46443/eggert-claessen-radinn-framkvaemdastjori-frumtak
Sjá: http://www.vb.is/frett/3/46443/eggert-claessen-radinn-framkvaemdastjori-frumtak


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home