föstudagur, ágúst 15, 2008

Fyrsti vinnudagurinn

Það voru aldeilis tímamót í dag þegar ég hóf störf hjá Frumtak. Reyndar byrjaði ég daginn á námskeiði hjá HR þar sem tveir sérfræðingar frá MIT töluðu um kennsluaðferðir og einn af kennurum HR sýnir Taikwondo og braut tréplötur. Svo var það skrifstofan í Borgartúninu. Það var nóg að snúast við að byrja verkefni og plana fundi og byrja að koma sér fyrir. Mér var vel tekið af fólkinu á fjórðu hæðinni hjá Samtökum Iðnaðarins og samstarfsfólk hjá Nýsköpunarsjóð vildi allt fyrir gera þannig að þetta leggst vel í mig. Það er strax orðin fjörug dagskráin á næstunni svo það verður nóg að gera. Spennandi !!!

2 Comments:

At sunnudagur, 17 ágúst, 2008, Blogger Anna C said...

Æðislegt að heyra. Til hamingju með starfið :)

 
At miðvikudagur, 20 ágúst, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með vinnuna

 

Skrifa ummæli

<< Home