mánudagur, september 22, 2008

Það dimmir

Það er eðlilegt að dagsbirtan dvíni þegar fer að hausta. Það er orðið dimmt á kvöldin þegar ég kem heim og drungalegt á morgnana þegar ég legg af stað í ræktina. Þó fannst mér keyra um þverbak í morgun þegar ég kom í ræktina og það var ljóslaust í búningsherberginu utan þess að neyðarlýsing var kveikt. Þetta skipti ekki öllu máli þegar verið var að koma sér úr jakkafötunum og fara í leikfimifötin, heldur var skrýtið að fara í sturtu í myrkri. Dauf skíma frá neyðarljósunum var við vaskana svo ég gat rakað mig, en að öðru leyti var þetta gert eftir minni.

Það eina góða við þetta var að það sást ekki á talnaborðið á vigtinni !!!

1 Comments:

At fimmtudagur, 25 september, 2008, Blogger Anna C said...

snilldarfaersla, serstaklega sidasti punkturinn ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home