"engin algjör blessun"
Það fór aldrei svo að það væri ekki vitnað í mann í Mogganum :-) Það var hringt í mig þegar ég var á leiðinni heim frá Keflavíkurflugvelli á föstudag og spurt hvort ég væri ekki formaður SUT? Ég játti því og þá kom í ljós að þetta var blaðamaður frá Mogganum og vildi spyrja hvort hugbúnaðarfyrirtæki sem seldu afurðir sínar erlendis væru ekki að hagnast á falli krónunnar. Þar sem ég er ekki hrifinn af frjálsu falli krónunnar svaraði ég í samræmi við það og þetta var síðan haft eftir mér í laugardagsblaðinu. Ég tók ekki eftir þessu en þegar ég mætti á hlaupaæfingu í gær þá var vakið máls á þessu svo ég tók til við að finna fréttina en þar segir m.a.:
Erlendar skuldir hækka
Eggert Claessen, formaður Samtaka upplýsingafyrirtækja, sagði lágt gengi „enga algjöra blessun“ fyrirhugbúnaðarfyrirtæki sem selji á erlendum mörkuðum. Flest fyrirtæki hafi skuldir í erlendri mynt, og þær hækki líka með lækkuðu gengi. Hátt gengi krónunnar undanfarin ár hafi staðið hugbúnaðarfyrirtækjum fyrir þrifum, og því sé ljóst að leiðrétting á genginu hafi verið orðin löngu tímabær,þótt hún hafi farið út í öfgar undanfarið.


2 Comments:
hahaha! Nú veit ég ekki hvort þetta sé sameiginlegur orðaforði úr ættargenunum. En það vildi svo til að ég var á þjóðhátíð í eyjum 2002. Dauðuppgefinn á volkinu náði ég einu flugferðinni heim, sem var farin á sunnudeginum. Þar sem ég kom svo kaldur og hrakinn úr vélinni, eftir erfiða flugferð í vafasömu ástandi, tók við mér fréttamaður sjónvarpsins. Sökum einstakrar meðvirkni fékk hann mig til að stilla mér upp fyrir framan myndavélina. Spurði svo hvernig Eyjar hefðu verið. Þá sagði ég eftirfarandi (sem þín ummæli minntu mig á nú): Það var mjög mikið af engu grasi.
Þetta gæti sumsé verið stórkostleg uppgötvun, þ.e. að tilsvör geti verið genatísk ??? Það mætti leggjast í langar rannsóknir á þessu.
Skrifa ummæli
<< Home