Í minningu móður
Mig langar að minnast móður minnar, Jóhönnu Júlíönu Guðbjartsdóttur Claessen, sem hefði orðið níutíu ára í dag. Þar sem ég lagði blóm að leiði hennar í dag var margt sem fór í gegnum hugann. Sérstaklega varð mér hugsað til þess að það eru 26 ár síðan hún lést (11-2-1982) og að ég var 22 ára þegar það gerðist. Börnin mín, Ásdís og Anna orðnar eldri og Stefán á stutt í að ná þangað. Þess vegna er ég þakklátur fyrir að geta ennþá verið með börnunum mínum. Einnig komu eftirfarandi ljóðlínur Freysteins Gunnarssonar upp í hugann:
Að minnast góðrar móður,
er mannsins æðsta dyggð,
og andans kærsti óður,
um ást og móðurtryggð.
Hjá hennar blíða barmi,
er barnsins hvíld og fró,
það hverfa tár af hvarmi,
og hjartað fyllist ró.
Blessuð sé minning móður minnar.


2 Comments:
Rosalega fallegt blogg og ljod.
Eg er lika oendanlega takklat ad geta ennta verid med ykkur mommu.
Takk Anna mín. Það var synd að þú skyldir aldrei ná að hitta ömmu þína.
Skrifa ummæli
<< Home