Ótrúleg vika að baki
Þegar Sigrún fór til Ítalíu síðasta sunnudag í gönguferð með saumaklúbbnum sínum, þá óraði hvorugt okkar fyrir viðburðum vikunnar. Ég líki atburðarásinni á mánudagsmorgninum við náttúruhamfarir þar sem ég vissi ekki í nokkurn tíma hvort Sigrún hefði vinnu og hvort fjármunir okkar voru tapaðir. Þetta er verulega óþægileg líðan og ekki hvað síst vegna þess að ég náði ekki í Sigrúnu í síma. Þótt yfirtaka ríkisins á Glitni hafi komið mér á óvart þá varð ég strax rólegri þegar þetta hafði verið tilkynnt því þá var ljóst að ekki yrði gert áhlaup á bankann af innistæðueigendum og að rekstur bankans væri tryggður eitthvað áfram. Dagurinn leið svo áfram og ég undirbjó kennsluna á þriðjudeginum lítillega því ég átti að vera með kynningu hjá ALVÍB á þriðjudeginum á sama tíma, sem þurfti einnig að undirbúa. Síðan var það sprettæfing á Brúnaveginum og þar sem ég ætlaði mér að komast snemma af æfingunni þá elti ég fremsta hópinn og gersamlega kláraði mig á hlaupunum en náði samt að hanga þokkalega á þeim. Það er allavega árangur af öllum æfingunum.
Það kom mér ekki á óvart að á þriðjudeginum var kynningin hjá sjóðnum slegin af þannig að ég gat kennt eins og venjulega. Ég var að skila af mér fyrsta skyndiprófi námskeiðsins og var útkoman ekki góð. Ég spurði nemendur mína hvað væri að því ég teldi mig betri kennara en niðurstaðan gaf tilefni til. Ég held því miður að fólk nenni ekki að undirbúa sig og ætli bara að fljóta í gegn því það var einn nemandi með 10 en einkunnir fóru niður í 2.5.
Á miðvikudeginum byrjaði ég í ræktinni á léttri lyftingaæfingu en náði seinna um daginn að fara í langþráða klippingu á því hári sem ég hef enn á kollinum og komst að því að verðbólgan æðir áfram. Þar sem ég er alltaf í sams konar meðferð reiknast mér til að þjónustan ásamt efnum hafi hækkað 60% á árinu. Það hafði kólnað í veðri og komið stíft rok þegar ég fór á hlaupaæfinguna. Það voru farnir 13 km um Fossvogsdalinn og þegar við við komum í Nauthól fengum við vindinn í fangið. Það var svo ótrúlega kalt að fá norðannepjuna í fangið að ég herti á hlaupunum og hljóp eins hratt og ég mögulega gat. Þegar ég loksins komst inn í Laugar aftur fannst mér sem ég væri kalinn inn að beini og eyddi löngum tíma í sturtunni við að þíða sálina. Góðu fréttirnar voru að ég bætti mig um heilar þrjár mínútur á hringnum þótt ég hlypi með vindinn í fangið.
Á fimmtudeginum hélt ég áfram ýmsum undirbúningi vegna funda fjárfestingaráðs og stjórnar í vinnunni en badmintonið var auðvitað á sínum stað í hádeginu og vel tekið á því. Þegar kom að hlaupaæfingunni var ég svo brenndur (frystur) af hlaupinu daginn áður að ég ákvað að taka sprettæfingu á bretti inni. Það var greinilegt að badmintonið hafði tekið úr mér mesta bitið en ég náði samt þremur 400 metra sprettum á 13.2 með 3 mín á milli eftir að hita upp í 10 mín á 10km og 10 mín á 11 km þannig að þetta var alveg boðlegt.
Föstudagurinn var heldur betur fjörugur því hann fór í Seed Forum og Sjávarútvegssýninguna. Seed Forum byrjaði með því að þrír ráðherrar og einn ráðuneytisstjóri skrifuðu undir samning um samstarfsvettvang hátækni og sprotafyrirtækja. Ég skrifaði undir sem formaður SUT en að auki skrifuðu undir fulltrúar SI, SÍL og SSP. Síðan voru tvö framsöguerindi þar sem dr. Jón Ágúst frá Marorku sagði frá fyrirtækinu sínu og ég var með síðara erindið þar sem ég kynnti Frumtak. Erindin voru bæði á ensku og þess vegna hafði ég daginn áður þurft að snara glærunum mínum yfir á það tungumál. Þá tóku við fyrirtækjakynningar sem mér fundust góðar. Það var einnig til að kæta mig að námsfélagi okkar Eyþórs frá Henley, Richard Searle, var í heimsókn hjá Eyþóri og voru það fagnaðarfundir. Mér hafði verið boðið á Sjávarútvegssýninguna og fór ég á hana eftir að hafa borðað með Richard og Eyþóri. Á sýningunni skoðaði ég rafræna afladagbók og svo auðvitað sýninguna og hitti ýmsa sem ég hitti almennt ekki. Það var það móttaka hjá breska sendiherranum kl. 17 þar sem ekki bara Seed Forum gestir morgunsins voru heldur einnig fleiri fyrrum meðlimir. Síðan var það Höfði þar sem áfram var spjallað og ég náði að kynnast breska sendiherranum betur og töluðum við lengi saman. Kvöldið endaði svo á B5 þar sem ég entist ekki lengi því ég var bara í vatninu vegna þess að það stóð til að hlaupa á laugardagsmorgninum. Mér varð samt ekki að þeirri ósk minni því það var svo kalt í gærmorgun að ég ákvað að bíða eftir hita og hláku og þegar þetta er skrifað á sunnudagsmorgni er byrjað að rigna svo vonandi næ ég að hlaupa eftir hádegið. Þótt ekki sé búið að finna leiðina út úr efnahagsvandanum þá vona ég að næsta vika verði ekki jafn tilfinningaþrungin.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home