sunnudagur, október 12, 2008

Ótrúlegri vika að baki !!!

Ekki varð mér að ósk minni um rólegri viku. Ekki nóg með að Landsbankinn færi og Glitnir heldur þurfti Kaupþing líka að lúta grasi. Þvílíkir tímar. Það er klárt að manni er séð fyrir umræðuefni á elliheimilinu í framtíðinni. Mig óraði ekki fyrir því að eitthvað þessu líkt gæti gerst.

Hvað sjálfan mig varðar þá hitti ég framkvæmdastjóra Lotus hugbúnaðarfyrirtækisins hjá GoPro á mánudeginum. Ég náði að mæta vel á æfingar og hljóp eins og elding eða náði að hlaupa hraðar og jafnar en ég hef gert í mjög langan tíma. Þetta er aldeilis huggun í öllu fárinu sem gengur á. Ég hélt áfram að klára að skrifa fjárfestingaferlið vinnunni og skoðaði fyrirtæki. Það er nefnilega uppörvandi að skoða sprotafyrirtækin og sjá hvaða möguleika við eigum sem fyrirtæki og þjóð að ná árangri í viðskiptum. Þetta verður örugglega innlegg í viðsnúninginn frá þeirri gífurlegu kreppu sem þjóðin stendur frammi fyrir.

Ég leit við í haustfagnaði Gogogic á föstudeginum og var umræðan lituð af atburðum vikunnar. Þar fékk ég skemmtilegt símtal þar sem viðmælandi kynnti sig sem Björk Guðmundsdóttur. Þetta var sumsé hin eina sanna Björk. Hún var að vinna í umhverfismálunum og var að safna að sér fólki sem kemur að sprota og nýsköpunarfyrirtækjum, sérstaklega í hátækni. Ég hafði reyndar fengið tölvupóst frá þeim sem bentu henni á mig svo ég varð ekkert voðalega hvumsa. Ég fór svo að kenna frá 19-22 á föstudagskvöldinu í Viðskiptasmiðjunni í Klakinu og kenndi „Auðlindir og hæfi“.

Í gær fór ég svo að hlaupa eins og venjulega. Nú var Styrmir mættur og hljóp með mér fyrstu fimm kílómetrana en svo fann ég fjórar frískar konur sem voru á sömu leið og slóst ég með í för. Það var ansi gott klfur úr bryggjuhverfinu og alla leið upp í Moggahöll í Hádegismóunum og Elliðaárdalinn til baka. Alls urðu þetta 22 km og sögðu stöllurnar að meðalhraðinn hefði verið 11km sem er hálfri mínútu betur á hvern kílómeter en hefur verið hjá mér. Ég lék mér að þessu og var í fantaformi. Nú verður erfitt að fara með þetta nýja form fram að NY maraþoninu því það er svo mikil hætta á að ég klúðri. Annars fékk ég svo aftur símtal í gær frá Björk og núna boðaði hún mig á fund með sér og öðru fólki niður á Klapparstíg. Þar var spjallað um málþingin sem hún ætlaði að standa fyrir og varð það úr að ég mætti á það fyrsta sem var í dag og sagði frá myndlíkingunni um hraðbrautinni frá hugmynd til hagsældar. Síðan var ég að kenna seinni hlutann í Klakinu frá eitt til fimm. Við hjónin enduðum síðan á Ítalíu í léttum málsverð því það veitti ekki af að eiga smá stund saman, ég tala nú ekki um í því ástandi sem nú er framundan. Annars er ég ágætlega bókaður svo það verður nóg að gera en mér finnst mál að linni í stórtíðindunum.

2 Comments:

At mánudagur, 13 október, 2008, Blogger Anna C said...

va tvilik vika ad baki. Tu bara i fantaformi og ad spjalla reglulega vid Bjork. Otrulegt.

 
At mánudagur, 13 október, 2008, Blogger EggertC said...

Já, þetta eru ótrúlegir tímar. Nú er bara að standa sig í öllu þessu ástandi.

 

Skrifa ummæli

<< Home