Æft fyrir tindana (lok júní)
Það er búið að vera strembið æfingaplan fyrir 24 tinda á Akureyri. Í stað þess að
hlaupa langt á laugardögum hafa verið 8-9 tíma gönguferðir á Esjunni. Við höfum verið sæmilega heppin með veður en samt hefur yfirleitt verið mikil þoka einhvern hluta leiðarinnar svo það hafa orðið ýmis ævintýri þrátt fyrir að Aðalsteinn hafi verið með GPS tæki. Ég tók tvær athugasemdir úr hlaupadagbókinni sem lýsa dálítið stemmingunni.
„Kerhólakambur með Göngudeildinni. Skv. Aðalsteini var tölfræðin pace 2.4 moving, 1.9 average, distance 6.8 og elevation 600 mtrs. Hreint frábær ganga í frábærum félagsskap í góðu veðri þar sem maður var aldeilis þakklátur fyrir tækifærið að geta verið að gera svona skemmtilega hluti.“
„8 tíma gönguferð sem reyndist svaðilför því eftir Móskarðshnjúka og Laufskörð í góðu veðri skall á blindaþoka og eftir að hafa gengið endalaust á Hábungu kom í ljós að við höfðum farið framhjá Þverfelli og fórum því niður í Bleikdal þar sem við fórum yfir mýrar og móa og ég sökk upp að klofi í keldu. Hvílíkt ævintýri !!!“


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home