mánudagur, júní 15, 2009

12 dagar í detoxi

Ég var að klára tæpar tvær vikur í detox stöðinni á Reykjanesi og er svangur og sjö kílóum léttari. Ég hélt svosem enga dagbók yfir veru mína en á tvo pósta sem ég sendi hlaupafélögum mínum í byrjun og lok tímans sem ég held að segi allt sem segja þarf. Sá fyrri var svona:

Ég náði að hlaða vel á leiðinni frá Mývatni og var því orðinn jafn þungur og eftir jólasteikina, a.m.k. miðað við vigtina hérna. Þess vegna fara fyrstu kílóin bara í að ná í sömu stöðu og í byrjun Sleppt og Haldið, og langt í að ná Biggest Looser kílóatölunni aftur. Ég er búinn með þrjá heila daga hérna þar sem dagurinn byrjar á rauðrófusafa með hvítlauk, fjórðung úr grape og fjórðung úr appelsínu, síðan kalt grænmeti og heitt grænmeti og er naumt skammtað. Hádegið er hálft kiwi, kalt grænmeti og síðan heitt grænmeti í súpu. Kvöldið er síðan kalt og heitt grænmeti, þó minna en í hádeginu. Sumsé, þetta er nánast ekki neitt !!! Í dag er ég að byrja tvo djúsdaga og þá fékk ég í morgunmat til viðbótar rauðrófusafanum tvö hálf djúsglös, annað með gulrótarsafa en hitt með agúrkusafa. Síðan eru tvö hálf djúsglös í hádegis og kvöldmat. Að loknum djúsdögunum tekur við vatnsdagur og síðan aðrir tveir djúsdagar þangað til farið er á grænmeti á ný. Það þarf því ekki að koma á óvart þó fólk missi einhver kíló hérna :-)

Síðan sendi ég framhald þegar ég sá fram á að dvölinni færi að ljúka:

Þetta er búið að vera merkileg upplifun að vera í tólf daga á nánast engum hitaeiningum, t.d. með tvo vatnsdaga, og vera samt uppistandandi og geta t.d. gengið 18 holur í golfi eins og ég gerði í gærkvöldi og á mánudagskvöldið. Þess vegna er ég búinn að skilja að við borðum alltof mikið af orku þegar við gætum verið að borða trefjar, sem eru að mestu án hitaeininga.

Maður spyr sig um ávinning af dvöl sem þessari og eðlilegt að byrja á kílóunum og get ég sjálfsagt ekki kvartað þrátt fyrir að vilja meira því þrátt fyrir að ég hafi losað mig við rúm 8 kíló, þá gerir það ekki meir en koma mér á þær slóðir sem ég var á í lok Biggest Looser keppninnar okkar og hafði ég missst það allt til baka, sem er hið raunverulega vandamál. Kílóin eru því góð að losna við en ég hafði meiri áhuga á því að láta reyna á lækningaþátt meðferðarinnar og losna þannig undan þeim lyfjum sem ég þarf að taka. Blóðþrýstingurinn hækkaði verulega á degi 7 og 8 og átti að vera merki um að líkaminn væri að lækna sig og lækkaði síðan aftur, en sjáum hvað setur þegar ég er kominn í atið aftur. Hitt finnst mér merkilegra að ég er að sjá fólk hérna, yfirleitt útkeyrt, búið að jaska sér út og þjáist af ekki bara kílóum, heldur gigt og alls konar bólgum og algjöru orkuleysi og eru í vítahring verkja og svefnlyfja. Þetta fólk gengur héðan út úthvílt, upprétt og fullt af orku, laust við lyfin og einkennin, gigtin og bólgurnar farnar. Þetta segir mér að kannski er ég í betra standi en mér finnst !!!

Síðan má bæta því við að blóðsykurinn minn fór úr 6.2 á fyrsta degi í 4.1 þegar ég var búinn og spennandi að sjá í framhaldinu hvar kólestrólið liggur. Hvað um það, batnandi manni best að lifa !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home