sunnudagur, apríl 05, 2009

Í Kastljósi

Á mánudaginn síðasta fékk ég upphringingu frá fréttamanninum Helga Seljan hjá Sjónvarpinu þar sem hann spurði spurninga vegna Frumtaks. Mér fannst uppleggið í meira lagi skrýtið og neikvætt og reyndi því að leiðrétta þær upplýsingar sem hann sagðist hafa og taldi þetta mál ekki ástæðu til sérstakrar umfjöllunar. En hann þóttist greinilega hafa eitthvað fyrir sér í þessu og spurði hvort ég væri tilbúinn að koma í viðtal vegna málsins. Ég var tregur til enda ekki með neina fjölmiðlareynslu að ráði og það er líka erfiðara þegar maður er vondi maðurinn í fréttinni. Engu að síður sagðist ég mæta ef hann ætlaði sér að halda áfram með fréttina enda finnst mér alltaf veikt ef maður er ekki til í að skýra frá sinni hlið mála.

Ég fór þess vegna upp úr þrjú, á milli funda hjá mér, upp í útvarpshús og var þá búið að stilla upp myndavél fyrir utan húsið þar sem ég svaraði nokkrum spurningum. Það er merkilegt við þessa fréttamenn hvað þeir eru uppteknir að búa til ágreining og þegar maður mætir fyrir hönd vinnuveitenda síns þá halda þeir uppteknum hætti með því að spyrja hvað manni finnist sjálfum, eins og það skipti máli í fréttinni þar sem verið er að fjalla um stefnu sem eigendur sjóðsins sem ég starfa hjá hafa skilgreint. Ég lagði þess vegna áherslu á að fjalla málefnalega um mín eigin vinnubrögð og segja eins og er að það væri þeirra, sem móta stefnuna að horfa á heildarmyndina og gæta samræmis í þeirri stefnumörkun. Ég setti því status á fésbókina mína að ég hefði verið í Kastljósviðtali í hlutverki bakarans og smiðinn hefði hvergi verið að finna.

Þegar kom svo að því að horfa á þetta um kvöldið þá var þetta fyrsta málið sem sagt var frá og á ekki lítið neikvæðum nótum. Ég fékk strax SMS frá frúnni sem sagði að þetta byrjaði neikvætt og hafði hún aldeilis rétt fyrir sér. Þegar ég síðan sá sjálfan mig svara verð ég að segja eins og íþróttamennirnir að ég hefði ekki getað gert betur. Þegar ég síðan spurði fésbókarvini mína þá var kannski eðlilegt að þeir reyndu að stappa í mig stálinu og gaman að fá umsagnir eins og „Þú varst bara flottur og faglegur :) Þú komst vel fyrir þig orði í Kastljósinu, flott hjá þér :-) "Þú tókst þig virkilega vel. Traustur með allt á tæru. Gott að heyra. Þetta var erfið staða að vera í, sérstaklega með svona neikvæðri kynningu "Skeleggur og vel máli farinn eins og fyrri daginn.
" uss... þú minntir mig nú helst á pólitískan ref! En sli(y)ngann pólitískan ref :-) Þú stóðst þig sumsé vel, en mér fannst (finnst) málstaðurinn ekkert sérstakur. "Það er ekkert upp á hann að klaga .... eins og Stuðmenn sögðu. Menn reyna að vísu ýmislegt fyrir pening ...“

Fyrir þá sem vilja horfa á herlegheitin þá er slóðin
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4431351

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home