sunnudagur, mars 22, 2009

Óvænt flugferð

Ég skokkaði eins og svo oft áður á laugardaginn fyrir viku síðan. Vegna vindáttar var haldið vestur í bæ, þ.e. Sætúnið, Skúlagötu, Kalkofnsveg og svo þegar komið var á Geirsgötuna við gatnamótin við Tryggvagötuna gerðist hið óvænta. Ég kom að ljósunum og þá stoppar bíllinn við ljósin fyrir mér og ég skokka áfram yfir götuna en sé þá að ég er á rauðu og ætla að auka hraðann svo bíllinn geti náð sínu græna ljósi. Ég kippist af stað, þó þannig að ég rek tána í götusteininn og bókstaflega tek flugið áfram eins og ég sé að stinga mér til sunds. Ég hendist yfir á hina akreinina og næ að bera fyrir mig hendurnar þar sem ég sogast ofan í malbikið. Ég er ennþá á ferð þegar ég fer í malbikið og hnúarnir skrapa steininn og ég finn að hægra hnéð hafði eitthvað lotið grasi í baráttu sinni við götuna. Mér brá auðvitað óneitanlega og ekki laust við að maður skammaðist sín fyrir klaufaskapinn þar sem ég lá marflatur og meiddur í götunni og meira að segja Garmurinn (mælitækið mitt) hafði losnað að hendinni.

Ég stóð því fljótt á fætur og hlaupafélagarnir mínir komu á eftir mér og datt ekki annað í hug en ég hefði stórslasað mig. Ég bar mig mannalega og sagði fötin hafa bjargað mestu og hnéð væri bara hruflað svo það væri ekkert mál að halda áfram. Reyndar voru hlaupabuxurnar rifnar á hnénu og það var blóðugt að sjá en ég leit á það sem hluta af hetjumyndinni. Það var þvi haldið áfram og skokkað út á Eiðistorg og þaðan Hofsvallagötuna nema að til þess að fá fleiri kílómetra og líka til að skokka í skjóli, því það var svolítið hvasst, þá hringsóluðum við á Melunum í skjóli, sól og hita. Þegar við svo komum inn að Laugum þá bættum við Kolla við kílómetrum svo við kæmumst í 22 km. Þegar ég komst svo loks í búningsklefann sá ég að hnúarnir voru tættir og hnéð blóðugt, bólgið og marið.

Ég er síðan búinn að vera að drepast í hnénum alla vikuna þarf að hafa kælipoka á því á kvöldin og veitti ekki af smá íbúfeni fyrstu þrjá dagana. Ég náði að hlaupa á miðvikudaginn og svo í gær þannig að þetta er vonandi allt að koma en ofan á hásinaslíðurbólguna í vinstra fætinum var þetta eitthvað sem mátti alveg missa sig :-(

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home