Latur að blogga
Eins og lesendur hafa tekið eftir þá er ég ekki duglegur að blogga síðustu vikurnar. Ástæðan er einföld. Nú snýst tilveran mikið um vinnuna mína og ég get auðvitað ekki bloggað um hana af augljósum ástæðum, ekki nóg með það, heldur er líka mikið að gera hjá mér svo ég er ekki í miklu bloggstuði. Hitt er síðan að ég hef verið að blogga einu sinni í viku fyrir hönd skokkfélaga minna á Laugaskokksblogginu svo það er ekki mikill ritþróttur eftir þegar því er lokið.
Ég er samt ekki hættur að blogga því það er auðvitað alltaf eitthvað að gerast sem hlýtur að vera tilefni til þess að segja frá þótt það sé ekki á fárra daga fresti.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home