Mynd í sunnudagsMogganum
Mér var bent á að það væri mynd af mér í Mogganum á sunnudag. Ég leit yfir blaðið og gat með engu móti fundið mig í blaðinu og bað því um nánari upplýsingar. Ekki stóð á því og mér sagt að líta á síðu tvö og viti menn, ég var í mynd með frétt um hvítu borðana og nýja lýðveldið og í góðum félagsskap að skokka með þeim heiðurshjónum Stefaníu og Aðalsteini.



2 Comments:
Mér finnst rétt að það komi fram við við Kolla vorum svo langt á undan og fórum svo hratt að við festumst ekki á filmu.
Hrafnhildur
Heldur betur rétt hjá þér. Ég er tilbúinn með frásögn af því í Göngudeildarbloggið eftir viktun á morgun.
Skrifa ummæli
<< Home