Blóðugt viðtal
Í öllum hamaganginum og umræðunni í kringum Frumtak, þá kom frétt í Ríkissjónvarpinu um málið. Það var hringt í mig á föstudaginn og spurt hvort ég gæti komið og svarað nokkrum spurningum. Ég var í óttalegu stressi með tíma en lét mig hafa það að rjúka upp í útvarpshús. Ég fékk ekki stæði við húsið og þurfti að ganga smá spöl. Þá vildi ekki betur til en það kom slydduél með tilheyrandi úrhelli þannig að þegar ég kom í hús var ég eins og dreginn upp úr sundlaug. Myndatökumaðurinn lét mig fá pappírsklút til að þurrka mér í framan og vildi þá ekki betur til en ég reif upp rakvélaskurðinn sem hafði myndast um morguninn þegar ég var að flýta mér í vinnuna og ekki nóg með það, heldur var ég látinn snúa þeirri hliðinni sem var alblóðug upp í myndavélina. Þegar ég svo sá af"raksturinn" af viðtalinu, þá leit ég út eins og fórnarlamb í stríðinu í Mið-Austurlöndum frekar en framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðs. Þar sem þetta var fyrsta sjónvarpsviðtalið sem ég fer í, þá skrifa ég þetta á reynsluleysið en ég læri hratt !!!
Það hefur því ekki linnt hringingum, tölvupóstum og fésbókarummælum þar sem mér er bent á notagildi rafmagnsrakvéla og ég er handviss um að þetta verður fimmtugsafmælisgjöfin í ár. Ef einhvern tíma var nauðsynlegt að hafa húmor fyrir sjálfum sér, þá held ég að þetta sé málið :-)
Ef þið viljið sjá hörmungina, fylgið þá þessum hlekk og veljið fréttina 4 milljarðar í nýsköpun.
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4456488/2009/01/11/6/


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home