Aðventugleði
Hún Bogga sem þjálfar Laugaskokk kom að máli við mig um daginn og bað mig að vera í skemmtinefnd fyrir haustfagnað skokkhópsins ásamt Hrafnhildi, Pétri og Mundu. Við vorum í bloggi kölluð skemmtilega nefndin og dagurinn valinn sem 29. nóvember. Munda var svo í sambandi við mig og þá kom í ljós að hún var búin að bóka félagsheimilið á Kjalarnesi og matinn hjá Krua Thai. Það var enginn með hugmynd að dagskrá og varð það á endanum niðurstaðan að ég tók dekkinguna á salnum að mér auk annarar dagskrár, tónlistar og veislustjórnar, semsagt sóló a la Eggert. Ég fékk Sigrúnu með mér í Rekstrarvörur að velja dúka og servíettur og síðan setti ég saman dagskrá sem ég kynnti með eftirfarandi hætti:
„Á fundi skemmtilegu nefndarinnar í dag var ákveðið að hætta að fylgja leiðbeiningakveri stjórnvalda um upplýsingagjöf til almennings og segja frá dagskránni á Aðventugleðinni.
Stutta útgáfan er sú að Aðventugleði Laugaskokks verður haldin að félagsheimilinu Fólkvangi, á Kjalarnesi, laugardaginn 29. nóvember n.k. Sætaferðir verða frá WC Laugum kl. 19:00 og aftur á sama stað kl. 01:00. Boðið verður upp á Krua Thai hlaðborð og gestir beðnir að athuga að taka með sér drykkjarföng, ekki aðeins fyrir matinn heldur einnig gleðina sem fylgir í kjölfarið. Einnig verður í boði fordrykkur, sem er sérstakt framlag Göngudeildar, svokallaður "Kreppukokteill" að hætti þeirra sem hægar fara. Athugið að þessi drykkur getur verið göróttur þeim sem hlaupa kílómeterinn hraða en fimm og þrjátíu þannig að sumir þurfa að passa sig :-)
Að síðustu er rétt að geta þess að undirrituðum var falin veislustjórn þar til betra býðst. Þeim sem vilja koma einhverju á framfæri á gleðinni í formi einræðu eða annarra leikinna atriða er bent á áðurnefnt netfang til þess að festa sér pláss í annars formfastri dagskrá sem er ennþá nokkurn veginn á þessa leið:
19:00 Rúta leggur af stað
Rútusöngur
Gengið (frá rútu) til veislu (að Fólkvangi)
Fordrykkur í boði Göngudeildar "Kreppukokteill"
Hlaðborð Krua Thai
Kaffi og konfekt
"Skemmtiatriði" Taktlausir Trimmarar
Hópefli að hætti danshópa
Dansinn dunar
01:00 Haldið heim á leið
Málið var að við fengum ekki húsið afhent fyrr en hálf sex svo við vorum mætt þrjú, þ.e. Hrafnhildur, Pétur og ég að setja þetta upp en Bjargey sá um að rukka og stýra rútuferðinni. Reyndar sáu Hrafnhildur og Pétur um alla lógistík í gleðinni, þ.e. diskar og glös inn og út og vaska upp á meðan ég lék veislustjórann. Það var samt svolítið stress að koma þessu heim og saman en salurinn leit vel út og kokteillinn var einfaldur, gin og greip en glösin skreytt með flórsykurrönd. Skemmtunin gekk vel og þegar ég valdi fimm stráka til að kenna línudans í atriðinu taktlausir trimmarar, þá hafði ég keypt flotta kúrekahatta í partíbúðinni svo þeir voru glæsilegir í atriðinu. Hópeflið var partípolki sem allir tóku þátt í og vakti mikla lukku. Ég hafði síðan fengið fullt af tónlist inn á tölvuna og valdi tveggja tíma prógram sem ég keyrði sem danstónlist og var hörkustuð. Ég var þreyttur og ánægður þegar þetta var búið og ljóst að ég mun ekki gefa kost á mér í skemmtinefndir á næstunni.


1 Comments:
Flott hja ykkur. Hljomar rosa vel. Skil tad vel ad tu munt ekki gefa kost a ter i skemmtinefndir a naestunni, tu hefur nu tegar alveg nog ad gera.
knus fra Vin,
Anna C
Skrifa ummæli
<< Home