Einangrun er ekki lausnin
Ég var meðal ræðumanna á Haustþingi Rannís sem var á þriðjudag í liðinni viku. Ég var ekki í amalegum félagsskap því dagskráin var eftirfarandi:
9:00 Setning haustþings Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
9:10 Systems Biology of Human Metabolism dr. Bernard Pálsson prófessor
9:35 Íslensk erfðagreining - staðan og framtíðin dr. Kári Stefánsson forstjóriÍslenskrar erfðagreiningar
10:00 Tækifæri í matvælarannsóknum dr. Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís ohf.
11:00 Hugvísindi og rannsóknarsamstarf á krepputímum dr. Guðmundur Hálfdánarson prófessor
10:40 Orka, menntun og rannsóknir Edda Lilja Sveinsdóttir framkvæmdastjóri REYST
11:20 Fjármögnun þekkingarfyrirtækja dr. Eggert Claessen framkvæmdastjóri Frumtaks
11:50 Haustþingi slitið Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
Kári er alltaf skemmtilegur og var alltaf jafn móðgandi þar sem hann ræddi þróun mannsins og sagði það huggun sína að Vilhjálmur Lúðvíksson væri ekki endanleg útgáfa mannskepnunnar. En það sem stóð upp úr að mínu mati var erindi dr. Guðmundar Hálfdánarsonar þar sem hann ræddi stöðu mála út frá sögu Háskóla Íslands og komst að þeirri niðurstöðu að okkur Íslendingum hætti til þess að einangra okkur í kreppum. Það sem er hins vegar athyglisvert í máli hans er að einangrun framlengir kreppuástand. Þess vegna verður manni hugsað til skynseminnar í því að reyna að slá einangrunarskjaldborð um landið í samfélagi þjóðanna í kringum okkur. Vonandi lærum við eitthvað af þessu. Sagan segir annað :-(


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home