Vetni og Airwaves
Það er ekki hægt að segja að maður lifi tilbreytingalausu lífi. Sérstaklega ekki í fjárhagslegu fárviðri undanfarinna vikna. Síðasta vika var þar engin undantekning. Ég fékk fjárfestingastefnu samþykkta á mánudeginum og á þriðjudeginum var ég part af deginum á Agiles 2008 ráðstefnunni og hlustaði á tvö innlegg frá Jeff Sutherland sem mér fundust mjög áhugaverð og gott innlegg í hvernig á að reka hugbúnaðardeildir og fyrirtæki. Á miðvikudeginum byrjaði ég út í HÍ þar sem ég talaði í 45 mínútur yfir 5 gestum frá Lettlandi um „Private investor perspective on technological transfer“. Þvínæst lá leiðin út í Miðhraun þar sem ég skoðaði búnað til vetnisframleiðslu og fékk meira að segja að keyra vetnisbíl. Skemmtilegt starf unnið á þeim bænum. Deginum lauk svo eftir hlaupaæfinguna niður á Laugavegi 29b í Dead búðinni þar sem Gogoyoko tónlistarvefurinn var að kynna sig. Það leiddi aftur af sér að ég mætti morguninn eftir út á Sögu í Súlnasalinn til þess að hlusta á umboðsmann Avril Lavigne og Bare naked ladies tala um framtíð stafrænnar dreifingar og hvað virkar. Mjög áhugavert. Um kvöldið var ég svo kominn á Klapparstíginn að hitta áhugafólk um nýsköpun og er einn talsmaður þeirra með síðuna www.hjalli.com . Voru þar miklar umræður og sýndist sitt hverjum. Á föstudeginum byrjaði ég á því að skoða litla ómannaða kafbáta og endaði daginn á að skoða greiningartækni fyrir Alzheimer. Laugardagurinn var svo flott hlaup í 22.5 km, kíkt á Hugsprettu sem var samkoma í Háskólabíó, fyrirlestur í MBA námi og svo daginn eftir málstofa hjá Björk í HR. Síðan var auðvitað allt annað í vikunni, sem er núna flokkað sem „business as usual“ !!!


1 Comments:
vo... tvilikt stud hja ter og nog ad gera. go pabbi!
Skrifa ummæli
<< Home