miðvikudagur, október 15, 2008

Í útvarpinu

Ég fékk skemmtilegan póst í dag. Hann var þannig:

"Heill og sæll. Heyrði í þér í útvarpinu í gær. Það var í þætti sem unninn var upp úr framsögum á fundi í HÍ um helgina. Tek undir að mál þitt eigi erindi við þjóðina núna, það einkennndist af raunhæfri jákvæðni. Hefði verið gaman að sjá glærunar, en þó komstu myndinni vel til skila í máli þínu."

Ég hafði ekki hugmynd um að vinnustofan sem ég tók þátt í á sunnudag myndi rata í útvarpið í heild sinni svo ég varð að spyrja hvar og hvenær þetta hefði verið. Þetta var sumsé á rás1 kl. 21:00 í gærkvöldi. Slóðin kemur hér á eftir en fyrst talar Björk, þá Svafa rektor og svo ég og síðan fleiri. http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4431842

Myndin sem auðvitað sást ekki í útvarpinu var þessi:



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home