Þrjátíu ára trúlofun
Þegar talað er um þrjátíu ára eitthvað þá man maður helst eftir þrjátíu ára stríðinu en öllu lukkulegra var að muna það í gær að við (hverrar nafn má ekki nefna á blogginu) áttum þrjátíu ára trúlofunarafmæli. Þetta var 11. nóvember 1978 og höfðum við valið afmælisdaginn hans föður míns, sem var löngu látinn (1970). Þess vegna hefur alltaf verið auðvelt að muna eftir deginum. Mér er það svo minnistætt að við fórum út að borða með mömmu minni og tengdaforeldrum mínum. Við hittumst öll heima á Fjólugötunni og síðan var haldið niður í bæ og borðað á veitingastað sem hefur á sér annað yfirbragð í dag en þetta er Óðal við Austurvöll. Þarna hafði tengdafaðir minn unnið einu sinni á skriftstofunni og þekkti því vel til staðarins. Ég man líka að hann gaf skýr fyrirmæli til kokksins um að ætlunin væri að snæða turnbauta bernaise og að bæði kjötstykkin sem væri á hverjum disk skyldu vera góð, ekki bara annað!!! Maturinn var frábær. Svona man maður ótrúlegustu hluti.
Við ákváðum að minnast dagsins með einhverjum hætti og bókuðum því borð á Ítalíu og fórum þangað eftir að ég var búinn að kenna í gær. Maturinn og umhverfið var við hæfi og áttum við indæla stunda saman.


2 Comments:
Innilega til hamingju med trulofunarafmaelid og til hamingju med afa (pabba tinn). Gaman ad heyra tessa sogu. List vel a ykkur ad hafa skroppid a Italiu.
sakna ykkar
Til hamingju med thad. Eg hef tha verid 3 ja ara thegar thid settud upp hringana.
Skrifa ummæli
<< Home