Generalprufan
Nú styttist í maraþonið í New York þann 2. nóvember n.k. þess vegnaði notaði ég tækifærið til þess að æfa keppnishlaup í haustmaraþoni félags maraþonhlaupara í gærmorgun. Það var kalt og snjór á jörðu en ekki svo mikill að væri til mikilla vandræða. Ég var í nokkrum vandræðum í byrjun þar sem ég kom mér fyrir í startinu því þótt ég þekkti marga þá voru þarna allir að hlaupa miklu hraðar en ég. Þess vegna lifnaði heldur betur yfir mér þegar Sibba og Guðrún birtust, en ég hef hlaupið með þeim síðustu tvær helgar. Það var mikill hraði í byrjun og þegar ég sá okkur byrja undir fimm mínútum með kílómeterinn hvatti ég þær stöllur til að stilla sig en engu að síður vorum við yfirleitt undir fimm og fimmtán fyrri hluta leiðarinnar, eða út á Ægissíðu. Þegar kom út í Nauthól var Sibba farin að dragast aftur úr en Guðrún á þessari líka ferð. Ég náði henni reyndar eftir krókinn út að Loftleiðum en þar sem hún stoppaði ekki á snúningnum á Ægissíðunni náði hún forskoti á mig sem reyndist vera 3 mínútur þegar upp var staðið. Ég hins vegar stoppaði til að drekka á Ægissíðunni, ekki hvað síst vegna þess að þarna voru stöllur mínar úr Göngudeildinni, þær Kolla, Bjargey og Hrafnhildur og mönnuðu vatnsstöðina og áttu meira að segja kók handa mér. Ég fékk mér því Mars og kók og hresstist allur. Leiðin til baka var strembnari því þegar kom út í Nauthól aftur og beygði í áttina að Hótel Loftleiðum þá fékk ég norðanvindinn í fangið og fannst sem ég kæmist ekki úr sporunum. Ég gekk í gegnum drykkjarstöðina og fékk mér aðeins meira Mars og byrjaði að ná upp dampi og komst loksins á góðan rekspöl í Fossvogsdalnum. Það var strákur á undan mér sem ég ætlaði mér að ná en vantaði fimm sekúndur upp á. Ég mætti Gotta tvisvar í brautinni en hann var að hlaupa heilt. Þar sem þetta var afmælisdagurinn hans þá reyndi ég meira að segja að syngja afmælissönginn þar sem ég mætti honum í seinna skiptið í Skerjafirðinum. Þegar kom í mark þá kom í ljós að ég var á 1:53:14 sem var heldur betur á undan áætlun því ég var að stefna á tvo tímana. Ég var ekkert búinn á því og leið vel svo þetta var uppörvandi hlaup fyrir stóra daginn í næstu viku.
Ekki spillti fyrir að eftir stutta sturtu heima var haldið í Hafnarfjörðinn þar sem boðið var til leyniveislu til heiður Helga í tilefni fimmtugsafmælis hans. Þar hittumst við Laugaskokkarar á ný og gátum rifjað upp hlaup dagsins og notið glæsilegra veitinga. Takk fyrir mig.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home