þriðjudagur, desember 02, 2008

Á fleygiferð

Giovanni lenti um hádegisbilið á sunnudeginum. Ég var mættur út á flugvöll og héldum við strax af stað til Þingvalla því ég ætlaði okkur að komast yfir mikið og hafði áhyggjur af því að missa dagsbirtuna. Það var sól, bjart og kalt þannig að það var fallegt yfir að líta en hálka svo ég gat ekki keyrt eins hratt og ég vildi. Þegar við komum til Þingvalla fór ég í fræðslumiðstöðina og við horfðum á nokkur vídeó og síðan gengum við niður Almannagjá í glampandi sól. Giovanni var alveg himinlifandi og tók endalausar myndir af birtunni og berginu. Til þess að reyna að keyra hring en ekki fram og til baka fór ég Lyngdalsheiðina yfir á Laugarvatn og þaðan á Geysi. Minn maður var heldur betur hrifinn af goshvernum og komst varla yfir þetta allt saman. Þá var haldið áfram á Gullfoss og við fengum síðustu birtu dagsins þar og við gengum alla leið niður. Þar sem við höfðum ekkert stoppað, notuðum við tækifærið til að fá okkur eitthvað heitt að drekka og kökusneið. Það byrjaði að rökkva en við héldum ótrauðir áfram og keyrðum niður Grímsnesið áleiðis niður á þjóðveg 1. Þegar kom að Hveragerði var beygt til vinstri og keyrt framhjá nýju vatnsverksmiðjunni og áfram var haldið. Ég þóttist muna Krýsuvíkurleiðina og lét ekki á neinu bera en ég þurfti að viðurkenna innst inni að það voru sex ár síðan ég keyrði þarna síðast. Það dimmdi og dimmdi og vegurinn varð verri og verri. Loks kom ég að skilti sem benti á Grindavík til vinstri og þóttist ég þá vera rétt ókominn í Bláa Lónið. Þetta var lengra en ég hélt og þegar ég keyrði S beygjur við sjóinn í hálku og sjávarlöðrið gekk yfir bílinn þá verð ég að viðurkenna að mér stóð ekki alveg á sama. Þetta gekk allt saman og við fórum í Bláa Lónið og ekki minnkaði hrifningin hjá Ítalanum við að fara í lónið. Við brunuðum svo í bæinn þar sem ég skutlaði Giovaanni á hótelið í Brautarholtinu og ég fór að sækja Sigrúnu. Við fórum í Perluna en þar var jólahlaðborð svo maturinn var ekkert spes. Forréttirnir það skásta. Engu að síður var það þreyttur og ánægður Ítali sem fór heim þetta kvöld.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home