NÚNA - Er tækifærið
Það voru fleiri samkomurnar í liðinni viku. Á föstudag var haldinn samkoma á vegum SI, þ.e. SUT, SÍL og SSP, en fyrir þá sem ekki vita þá er ég formaður SUT (ennþá). Fundurinn var auglýstur á vef SI á eftirfarandi hátt:
!Föstudaginn 14. nóvember verður haldinn fjöldafundur meðal fyrirtækja og fólks í hátækni- og sprotageiranum á Hilton Reykjavík Nordica kl. 16.00, húsið opnar kl. 15.30. Fundurinn kallast „Núna“ er tækifærið því að núna er einmitt tæifærið til að hefja markvissa uppbyggingu hátækni- og sprotafyrirtækja með virku samstarfi og samstöðu stjórnvalda, stjórnenda og starfsmanna um að treysta stoðir nýsköpunar og virkja mannauðinn. Tilgangur fundarins er að efla sóknarhug og sjálfstraust. Að fundinum standa Samtök iðnaðarins, Samtök líftæknifyrirtækja, Samtök sprotafyrirtækja, Samtök upplýsingafyrirtækja og Háskólinn í Reykjavík.
Dagskráin var þannig. Helgi Magnússon, formaður SI opnar fundinn og fundarstjórar taka við. Stutt innlegg frá fulltrúum fyrirtækja og stjórnvalda, Stiki - Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri, Össur - Egill Jónsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, Skýrr- Sigrún Ámundadóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna, Klak - Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri, Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, Valgeir Guðjónsson býr til tónlist með þátttöku fundargesta, Marel - Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel á Íslandi, CCP - Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri, Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, Marorka - Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri, Betware - Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri, Stjörnuoddi - Jóhanna Ástvaldsdóttir, fjármálastjóri, SagaMedica - Perla Björk Egilsdóttir, sérfræðingur, Björk Guðmundsdóttir, tónlistarmaður, Lag Valgeirs Guðjónssonar og DJ Margeirs flutt
Það var hreint frábært að sjá hvað margir mættu, en það var talið að um eitt þúsund manns hefðu sótt fundinn. Það var boðið upp á sælgæti og malt og appelsín en þegar formlegri dagskrá lauk var svokallað Mannblendi þar sem boðið var upp á íslenska bjórinn Kalda. Mér fannst þetta frábær fundur þar sem bjartsýni var leiðarljósið en ekki reiðin og svartsýnin sem er alls staðar í kringum okkur. Uppörvandi í bulli hversdagsins.


2 Comments:
Ég verð að kvarta yfir bloggleysi hjá þér! Það var í eina tíð að þú komst með hvert snilldarbloggið á fætur öðru mörgum sinnum í viku. Nú er það kannski einu sinni, tvisvar í mánuði.
Kvörtun tekin til greina. Vandamálið er að vinnan slítur svo í sundur daginn fyrir mér :-)
Skrifa ummæli
<< Home