Ótrúlega árið liðið
Það var ekki laust við að mér létti þegar árinu 2008 var lokið í gær. Ég hef ekki oft upplifað jafn miklar öfgar á einu ári og það þarf hörku til að greina aðal og aukaatriði og skilja það sem máli skiptir þegar svona mikið gengur á. Ég rifjaði upp nýársbloggið mitt fyrir sléttu ári og gat ekki annað en glott þegar ég las „Ég sló líka metið í fjölda flugferða, en ég flaug 75 sinnum á síðasta ári sem er næstum eitt og hálft flug á viku. Ég vona að ég slái ekki þetta met í ár því nú er ég orðinn fullsaddur á öllum þessum ferðalögum“ . Árið 2008 skiptist algjörlega í tvö horn hvað þetta varðar því mín upplifun var sú að ég hefði verið meira og minna úti til enda maí og síðan mest lítið eftir það. Ég var meira og minna í Glasgow til 1. maí ef ég var ekki að ferðast til Indlands eða Suður Afríku og síðast en ekki síst að sigla á Níl í Egyptalandi.
Viðskiptalega var árið 2008 hreint út sagt ömurlegt ár og langar mig ekki í annað svona tímabil sem hófst reyndar að hausti 2007. Þegar svo ofan á bætist alheimskreppa og fyrirsjáanlegt að Íslendingar verða í efnahagslegu helsi næstu þrjú árin hið minnsta, þá er ekki að furða þótt ég hafi efast um réttmæti þess að búa á þessu landi. Þess vegna glotti ég enn á ný þegar ég las í áðurnefndu bloggi mínu að doktorsvörnin og lokin á doktorsnáminu hefðu verið langþráður áfangi því það gæfi mér svigrúm til að huga að öðrum hlutum og svo þetta: „Þess vegna var húsið á Spáni vonandi sá staður þar sem ég get nýtt mér þetta nýja svigrúm til að huga að sjálfum mér, en ég hef ákveðið að það verði mitt næsta verkefni auk þess að vinna úr doktorsritgerðinni einhver skrif“. Hafi ég einhvern tíma haft algjörlega rangt fyrir mér þá var það þarna. Ég náði lítið sem ekkert að vera á Spáni, fyrst vegna ferðalaga og síðan vegna efnahagsástandsins svo þessi draumur verður að bíða betri tíma í einhverri lengri framtíð.
Þótt mér finnist árið 2008 vera ömurlegt að mörgu leyti þá gerðist líka hellingur sem er ótrúlega skemmtilegur í minningunni. Ferðalögin áðurnefndu til framandi og sögulegra staða, útskriftirnar hjá stelpunum og sjálfum mér, tónleikaferðir þar sem Waters tónleikarnir í London í júní voru hápunkturinn og síðan útskriftarboðið sem við héldum í Turninum þar sem rúmlega 120 vinir og ættingjar fögnuðu með okkur koma upp í hugann. Þegar ljóst var að peningarnir voru að baki lögðum við hjónin áherslu á heilsuna og frúin náði aðdáunarverðum árangri fyrir fimmtugsafmælið. Ég hins vegar náði að skríða inn fyrir hundrað kílóin og hljóp tvö maraþon á árinu, hið fyrra í Reykjavík í ágúst og það síðara í New York í nóvemberbyrjun.
Starfshagir fjölskyldunnar breyttust heldur betur. Stefán hóf nám í háskólanum í Wichita í Kansas og þar með voru öll börnin farin að heiman. Anna byrjaði að vinna á Evrópsku Einkaleyfastofunni í Vínarborg og Ásdís flutti til Ragnalds í Kaupmannahöfn og byrjaði að vinna sem sálfræðingur í Roskilde. Eftir markaðshrunið í byrjun árs ætlaði ég mér að fara að kenna i fullu starfi í haust en það breyttist þegar tilboð um stöðu var dregið til baka og ljóst að þar voru forlögin að verki því í júlí var auglýst staða framkvæmdastjóra hjá nýjum fjárfestingasjóði sem var ætlað að fjárfesta í sprota og nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af klakstigi. Ég hreppti hnossið og hóf störf 15. ágúst. Við fall bankanna komst tilvist sjóðsins í uppnám en leystist farsællega á Þorláksmessu. Það voru afdrifaríkari afleiðingar bankahrunsins því hún (hverrar nafn má ekki nefna á blogginu) þurfti að kveðja vinnuveitanda sinn eftir 23 ár í starfi og ljóst að hjá henni verða breytingar á nýju ári.
Þegar öllum viðmiðum manns hefur verið umbylt líkt og hefur gerst á þessu nýliðna ári, þá er ekki að furða þótt ég fari varlega í að líta til ársins sem nú fer í hönd. Ég upplifi þetta sem eins og ég sé kominn á byrjunarreit að nýju og sé að byggja upp, ekki einungis það sem hefur tapast heldur einnig að byggja upp til framtíðar. Ég hugga mig við það að vera í starfi þar sem ég geri ekkert annað en horfa á tækifæri og jákvæða hluti. Þannig næ ég vonandi að vera gerandi í þeirri viðreisn sem þjóðinni okkar er svo mikilvæg.
Gleðilegt nýtt ár !!!!!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home