Forsetaheimsókn
Það var hátíðastund í GoPro á föstudaginn 19. des. þegar forsetinn okkar heimsótti fyrirtækið. Þetta voru vissulega tímamót því það var einnig verið að halda upp á lok á þróunarverkefni sem hefur staðið í rúmlega tvö ár og er reiknað með því að það hafi farið rúmlega 100 mannár í verkefnið. Það var ekki síður ánægjulegt að halda einnig upp á fyrstu sölu vörunnar en danska lyfjastofnunin hefur fest kaup á kerfinu. Salan fer í gegnum IBM í Danmörku og er að mér skilst stærsta sala þeirra á síðasta ári, því GoPro kerfið er aðeins brot af heildarsamningnum.
Við settumst niður með forsetanum og kynntum honum aðeins lausnina og fannst honum að við ættum að gera meira í því að bjóða upp á námskeið í notkun kerfisins í opinberri stjórnsýslu og væri jarðhitaskólinn og orkuskólinn góð fyrirmynd að slíku. Ennfremur væri þetta hugmynd að framlagi í formi þróunaraðstoðar sem við erum skuldbundin að reiða af hendi í EFTA/EES samstarfinu. Að lokinni kynningunni gekk forsetinn um fyrirtækið og heilsaði upp á starfsfólk og síðan fórum við upp í kaffistofu þar sem flestir starfsmenn voru samankomnir. Þar var ávarp frá forstjóra og honum síðan afhent fyrsta formlega eintakið af kerfinu. Síðan tók forsetinn til máls og var ánægjulegt að heyra hvað honum leist vel á það starf sem verið að vinna í fyrirtækinu. Að lokum afhjúpaði forsetinn listaverk sem einn starfsmanna hafði gert. Voru þetta hvítur og svartur flötur þar sem á voru letruð orð sem undirstrika þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi í fyrirtækinu. Fannst mér þetta allt saman afar vel heppnað og var afar stoltur af frammistöðu allra sem áttu hlut að máli.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home