laugardagur, desember 06, 2008

Hann er dansari !!!

Í gær buðu Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins og Frumtak til Vetrargleði í nýjum húsakynnum í húsi Verslunarinnar í Kringlunni 7. Það var margt um manninn og líklega rúmlega eitthundrað manns sem þekktust boðið. Það var boðið upp á fingramat og létta drykki og fannst mér vel til takast. Finnbogi bauð gesti velkomna og rifjaði upp þegar hann tók við Síldarvinnslunni á Neskaupstað 1986. Þá var allt þar í kaldakoli og plássið rúið trausti, ekki ósvipað og er komið fyrir allri þjóðinni í dag. Þá skipti máli að innviðir samfélagsins voru sterkir og með stefnumótun og langtíma áætlunum var hægt að vinna sig út úr vandanum. Þetta tók um þrjú ár á þeim tíma og ekki ólíklegt að það verði aftur í þetta sinn.

Iðnaðarráðherra tók þá til máls og lagði aðeins útaf orðum Finnboga og var léttur í máli. Hann lagði út af stofnun Frumtaks og hrósaði forvera sínum í starfi og skálaði fyrir henni þótt hún ætli sér ekki að verða formaður Framsóknarflokksins! Síðan barst talið að ráðningu minni í starf framkvæmdastjóra. Hann sagði mig hokinn af reynslu eftir að hafa rekið fyrirtæki í 27 ár og vinnu í þágu upplýsingatækniiðnaðarins. Ég hefði að auki aflað mér doktorsgráðu í Bretlandi en hann sagði doktorgráður ekki skipta miklu á hans heimili. Hann teldi því fullvíst að ég væri rétti maðurinn til þess að stýra Frumtaki. En ef menn hafi haldið að ég hefði verið ráðinn vegna áðurnefndra kosta þá væri það alls ekki. Ég hefði verið ráðinn vegna þess að ég er dansari !!! Það er óþarfi að taka fram að viðstöddum þótti þetta æði skondið.

2 Comments:

At þriðjudagur, 09 desember, 2008, Blogger Anna C said...

hehhe snilld. "hann er dansari"

flott ad tu ert ad skemmta ter lika i kreppunni.

10 dagar tar til eg kem heim

sakna ykkar

knus,
Anna C

 
At þriðjudagur, 09 desember, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Veit maðurinn ekki að þú ert maraþonhlaupari,sem sannar hver seiglan er.

Ásta

 

Skrifa ummæli

<< Home