Gleðileg námskeiðslok
Þá er ég búinn að kenna Þekkingarstjórnun í Háskólanum í Reykjavík. Ég var að klára að fara yfir prófin og gefa lokaeinkunn sem ég skilaði á netinu í dag. Þá fékk ég aðgang að kennslukönnuninni með aðalspurningum sem gefur yfirlit yfir álit nemenda á námskeiðinu. Svarhlutfallið var 10 af 12 nemendum eða 83% sem ég held að teljist býsna gott. Það er gefið hæst fimm og lægst einn og var ég ánægður með að sjá mig fá bara fjarka og fimmur í samantekt um kennara nema í einni spurningu sem varðar aðgengi að kennara utan kennslutíma, þar sem ég fékk þrjá þrista því ég er auðvitað ekki á staðnum sem stundakennari og vísaði fólkinu á að hafa samband með tölvupósti. Ég náði því 4.55 í meðaleinkunn sem jafngildir 9.1 í tugakerfinu og væri örlítið hærri ef aðgengisspurningunni er sleppt. Hvað varðar samantekt um námskeiðið er það að skora 4.2 að meðaltali sem mér finnst mjög gott því það er verið að kenna þetta í fyrsta sinn þarna og þekkingarstjórnun er frekar óljóst fag fyrir þá sem koma að því í fyrsta sinn. Samantekt um nemendur var á svipuðu róli eða 4.25 og eru það þá nýting á glærum kennara sem hleypir upp einkunninni (4.7) á meðan tímanotkun utan kennslustunda í undirbúning skorar ekki nema 3.5 sem útskýrir mæta vel af hverju ég fékk fólk ekki til þess að tala í tímum.
Síðan voru nokkur ummæli nemenda um styrkleika námskeiðsins: „þolinmæði Eggerts þar sem við erum mjög þögull hópur... , Fróðlegt, önnur sýn á stjórnun og rekstur, varpar ljósi á falin verðmæti og skilgreinir betur hvað verðmæti eru, Áhugavert efni sem nýtist vel í starfi, góður kennari, námskeiðið vel skipulagt, Reynsla og þekking kennara“. Síðan eru auðvitað alltaf veikleikar til þess að benda á og nemendur bentu á eftirfarandi: „Mætti vera meiri tenging við íslenskt atvinnulíf, verður líklegast aldrei auðvelt samt því fagið virðist mæta afgangi í rekstri - gestafyrirlestar endurspegluðu fannst mér það sem fram kom í námsefni varðandi það að menn hefðu ekki tíma til að rækta þennan þátt stjórnuna nógu vel. , Mætti minnka lesefnið - svo hægt sé að fara dýpra í sum atriði., Öflugri og fleiri gestafyrirlesara“.
Í heildina litið er ég því ánægður með árangurinn, sérstaklega hvað nemendur virtu reynslu mína og þekkingu á efninu auk þess hve þeim þótti námskeiðið vel undirbúið og skipulagt. Gott mál.


1 Comments:
flott med einkunnirnar... til hamingju.
Skrifa ummæli
<< Home