laugardagur, desember 27, 2008

Spennandi vika

Það vantaði ekki spennuna í vinnunni minni vikuna fyrir jól. Þrátt fyrir falleg orð ráðherra í vetrargleðinni þá gekk erfiðlega að fá undirskriftir frá bönkunum því það voru stærri mál sem menn voru að fást við á þeim bæjunum. Síðan kom sprengjan þegar lagt var fram á Alþingi frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þar sagði í 13 gr. að lögin um ráðstöfun Síma peningana væru felld niður. Það væri í sjálfu sér ekki svo slæm tíðindi ef ekki væri að fjármögnun Frumtaks hvað varðar Nýsköpunarsjóð byggir á því fjármagni sem er ráðstafað í áðurnefndum lögum. Það voru því góð ráð dýr. Eftir mikil fundahöldoghringingar í tvo daga kom í ljós að áðurnefnd lög voru ekki settFrumtaki til höfuðs svo NSA gat staðið við skuldbindingar sínar. Síðan var tekið aftur til við kapphlaupið að fá skilmálana undirritaða af öllum stofnaðilum að nýju. Það var því aldeilis frábær jólagjöf þegar allar undirskriftir lágu fyrir á Þorláksmessu og Frumtak var loksins orðið a fullu starfhæft. Nú er hægt að leyfa sér að hlakka til !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home