Aftur í Útvarpshúsið
Þar sem ég var rétt að jafna mig eftir sjónvarpsviðtalið góða var hringt í mig og ég beðinn að koma í síðdegisútvarpið og ræða sprota og nýsköpunarfyrirtæki. Mér leið strax skár þegar ég vissi að Eyþór félagi minn í Klakinu væri þarna líka svo þetta yrði ekki mikið stress. Þetta fór bara vel. Ég sagði ekki margt og datt í þá gryfju að endurtaka mig því ég var að vanda mig aðeins of mikið. Þetta lærist. Það sem var fyndnast var að við vorum móðir og másandi vegna þess hve nálægt hljóðnemunum við þurftum að vera.
Ef þú vilt hlusta á þetta, fylgdu þá eftirfarandi hlekk og færðu stikuna svona u.þ.b. 75% inn í þáttinn. Góða skemmtun !!!
http://dagskra.ruv.is/ras2/4431965/2009/01/13/


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home