Önnur úrslitavikan
Ekki er ég að ríða feitum hesti frá megrunarkeppninni sem ég er að taka þátt í. Önnur úrslitavikan var á enda á miðvikudaginn þegar við 8 sem tökum þátt skiluðum inn vigtartölu vikunnar. Líkt og í síðustu viku þá er ég orðinn frásagnaritari keppninnar og blogga um það á Laugaskokksvefnum. Ég ætla að láta þetta fylgja með á blogginu mínu því þetta er um leið hápunktur vikunnar í "ritstörfum" mínum. Frásögnin var eftirfarandi:
Það voru trekktar taugar Kirsuberja og Bláberjabaka sem mættu í Laugaskokk í dag til þess að fá fram úrslit í annarri viku „Biggest Looser“ keppni Göngudeildar. Það var reynt að hanga sem lengst á skokkinu í dag til þess að losa sem mest af vatni en allt kom fyrir ekki. Það hafði mikið gengið á í vikunni. Dramatískar lýsingar af heimiliserjum vegna matargerðar og félagslegri einangrun á vinnustöðum voru áberandi og skyggðu á annað sem gekk á í þjóðfélaginu. Hápunkturinn var þó frásögnin af Bláberjabökunni sem grét við eldhúsvaskinn þegar hún hellti niður kókflöskunni og setti restina af jólakonfektinu í ruslafötuna. Jafnvel hinir hörðustu Laugaskokkarar komust við þegar þeir heyrðu af þessu.
Á samráðsfundi Göngudeildar sl. laugardag var ákveðið að refsigjald þeirra sem væru í 5-8 í hverri viku væri ISK 500 sem yrði safnað og ráðstafað í lok keppni til þeirra sem eftir yrðu. Einnig var ákveðið að tapliðið í rauða vs. bláa slagnum myndi kaupa máltíð handa vinningsliðinu. Reyndar urðu nokkrar umræður um hvort þetta væri viðeigandi því þetta samsvaraði því að fagna 8 vikna edrúmennsku með því að detta í það, en niðurstaðan var sú að ef þetta væri hollustumáltíð myndi það sleppa!!!Glöggir lesendur taka eftir því að nú er Pétur F kominn inn í töflur og útreikninga. Einnig er birt núna staðan í heildarkeppninni því þótt það séu úrslit í hverri viku þá verður bara einn„Biggest Looser“ í restina. Til þess að teygja ekki lopann lengur þá koma hér úrslit annarrar viku.
1. Bjargey.............. 2,34%
2. Stefanía ............ 1,98%
3. Hrafnhildur ......... 1,03%
4. Aðalsteinn .......... 0,98%
5. Eggert ............... 0,91%
6. Kolla ................. 0,79%
7. Pétur ................ 0,59%
8. Gunnhildur .. ...... 0,49%
Sigurvegari að þessu sinni er Bjargey og óskum við henni til hamingju. Bjargey hefur verið einbeitt og viljaföst og veitir ekki af þar sem hún á við ramman reip að draga því Stefanía lætur ekki deigan síga. Eru þær stöllur í nokkrum sérflokki þessar fyrstu tvær keppnisvikur. Rétt er að vekja líka athygli á hástökkvara vikunnar henni Hrafnhildi sem stekkur úr sjöunda sætinu í það þriðja. Það getur því allt gerst.
Í liðakeppninni urðu straumhvörf þessa vikuna því Bláberjabökurnar sigruðu Kirsuberin, reyndar með minnsta mun, 4.87 gegn 4.24. Engu að síður athyglisvert því Kirsuberin möluðu andstæðinga sína í fyrstu vikunni.
Í heildarkeppninni er staðan þannig: 1, Stefanía-5,65%.., 2. Bjargey-5,55%.., 3. Aðalsteinn-3,14%.., 4. Kolla-2,41%.., 5. Gunnhildur-1,75%.., 6. Eggert-1,69%.., 7. Hrafnhildur-1,51%.., 8. Pétur-0,59%.
Göngudeildin hvetur lesendur til þess að líta á bloggið í næstu viku og sjá hvort Bjargey og Stefanía ná að halda uppteknum hætti. Hverjir verma botnsætin og borga? Spennan er gífurleg!!!
Ég þarf að borga refsigjald aftur sökum slakrar frammistöðu. Ég hugga mig samt við það að þetta eru 7 vikur og ólíklegt að keppendur nái að halda áfram að léttast svona mikið. Minn tími hlýtur að koma :-)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home