Skrifað
Ég hef undanfarnar tvær helgar verið að reyna að setja saman grein fyrir IFKAD ráðstefnuna í Glasgow í næsta mánuði. Ég fór á þessa ráðstefna síðasta sumar, en þá var hún í Matera á Ítaliu og ég fór aðeins sem gestur. Eftir að Giovanni Schiuma heimsótti klakann í haust þá fylltist ég bjartsýni um að skrifa eitthvað upp úr doktorsritgerðinni. Nú er komið að því að láta þetta rætast. Ég sendi inn abstract sem var samþykktur en svo þarf að koma greininni saman. Ég átti að skila í gær en ætla að láta reyna á það hvort ekki gengur að skila á morgun. Það sem ég er kominn með eru rúmlega 20 síður svo ég er farinn að velta fyrir mér hvort ég þurfi ekki að stytta þetta. Ég nefni greinina "Knowledge and Business Dynamics" og byggi á niðurstöðum ritgerðinnar minnar. Þetta er mest tilvísun í ritrýni sem ég skrifaði og aðeins um rannsóknina sem ég gerði auk niðurstöðu sem er falin í titli greinarinnar. Eins og alltaf þegar maður skrifar eitthvað svona, þá veltir maður fyrir sér hvort þetta sé einhvers virði, þ.e. hvort að samsetning á einhverju sem maður hefur áður lesið er áhugaverð lesning. Ég ætla nú samt að láta slag standa og láta reyna á hvort ég fæ þetta endanlega samþykkt. Markmiðið er svo að koma greininni í birtingu í einhverju ritrýndu tímariti en það er einmitt það sem ég þarf í akademísku skilríkin mín, að vera birtur


2 Comments:
Publish or perish!!
Hrafnhildur
Ekki vill maður perish !!!
Skrifa ummæli
<< Home