föstudagur, janúar 16, 2009

Ég er ekki vegamálastjóri !!!

Ég fékk vink á fésbókinni áðan þar sem mér var bent á að ég hefði komið við sögu í spurningakeppninni Útsvar í Ríkissjónvarpinu. Ég var mjög forvitin að vita hvernig á því gæti staðið og kom þá í ljós að sýnd var mynd af manni og átti hann að þekkjast. Kópavogsbúar náðu svarréttinum og eftir nokkra umhugsun sögðu þeir myndina vera af Eggert Claessen framkvæmdastjóra Frumtaks. Svo var ekki því þetta var vegamálastjóri. Ég beið rólegur þar til ég náði þættinum á RUV+ og þegar ég sá myndina af vegamálastjóra fannst mér ekki möguleiki á að villast á okkur enda hafði heimildamaður minn tekið fram að ég líktist honum ekki nokkurn hlut.

Mér fannst þetta hins vegar merk tímamót að vera orðinn það frægur að villst væri á mér og vegamálastjóra og að menn vissu yfirleitt hvað ég héti og hvað ég gerði. Nú er bara spurning hvernig ég höndla þetta :-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home