Góð ráðstefna í Glasgow
Ég fór á mánudag til Glasgow til þess að vera á IFKAD 2009, sem er sama ráðstefna og ég sótti á Matera á Ítalíu í fyrra. Þá var einmitt tilkynnt um samstarf við SIAC í Glasgow og að ráðstefnan yrði til skiptis á þessum stöðum. Núna er hætt að fljúga beint til Glasgow og því þurfti ég að fara í gegnum London sem lengir heldur betur. Núna er Saga gullið útrunnið og það þurfti að fara í langtímastæðið og engar uppfærslur en kreditkortið kom mér inn á betri stofuna og þar hitti ég Gísla Gíslas og ræddum við heima og geima.
Ég kom svo loks til Glasgow kl. 17:30 (flaug frá Keflavík 9 um morguninn) og þar sem verið er að spara tók ég strætó í bæinn og borgaði 4,20 í staðinn fyrir 20 pund. Í bænum rétt náði ég í búð sem hún (hverrar nafn má ekki nefna á blogginu) hafði beðið mig að fara í og eins gott því það gafst enginn frekari tími til bæjarferða.
Ég hafði fengið boð frá Mariu að koma með þeim í mat um kvöldið og þegar ég byrjaði að leita að einhverjum rétt fyrir átta þá sá ég Anna Martin og málið leyst. Svo hitti ég JC, Giovanni, Martin ofl, Það var farið á Ubiqius Chip og sat ég með Mannfred Bornemann og Mariu og nóg að spjalla.
Á þriðjudeginum hófst ráðstefnan og dagskráin bara góð. Mikið að góðum fyrirlestrum og kynningum. Ég hitti Metis menn í hollum því fyrst hitti ég Bill, sem var með kynningu, og Stephen og svo Darran þegar við hittumst á krá fyrir utan hótelið áður en hátíðarkvöldverðurinn var. Þarna á ráðstefnunni voru flestir sem ég þekki út þekkingarverðmætaheiminum svo þetta var ósköp notalegt. Síðan var hátíðarkvöldverður á hótelinu um kvöldið. Þetta var „Burns“ supper með óðnum til Haggis og sekkjapípuleik. Ég hitti Brendan Waters þarna og fagnaðarfundir því við höfðum eiginlega ekkert heyrst frá því ég var að stússa með Amivox. Ég var svo til borð með Martin Leyton og gaman að hitta hann aftur, en hann fékk sig fluttan frá Alicante í stöðu rekstrarstjóra hjá SIAC og var bara að byrja daginn áður.
Á fimmtudeginum var svo kynningin mín. Ég átti ekki von á að það væru margir í salnum því þetta var síðasta kynning í síðustu parallel sessioninni. Þess vegna var ég ánægður þegar í ljós kom að þetta voru örugglega 15 manns eða fleiri og þarna voru Giovanni, sem stýrði, JC, Mannfred, Leif ofl. Ég var með svolítið annað snið á kynningunni minni en aðrir og sagði að ég vissi allt um greinina mína en það sem væri mér verðmætara væri umræðan við áheyrendur. Ég fékk flotta umræðu og skemmtilega session og lukkaðist þetta vonum framar.
Um kvöldið var svo farið út að borða á mexikóskan stað sem heitir Pancho Villas og skemmtilegt að segja frá því að við Ásdís fórum þarna saman að borða þegar við hittumst einu sinni í Glasgow. Þarna hitti ég svo Mary Jane hans Martins en við (hverrar nafn má ekki nefna á blogginu) höfðum hitt þau síðast þegar við vorum á Spáni. Virkilega gaman að spjalla.
Svo var það sami rúntur á fimmtudeginum en virkilega góð ferð að baki þar sem ég náði nánast að hitta allt erlenda tengslanetið mitt og gaman að upplifa þetta svona vel því manni veitir ekki af uppörvun á þessum tímum. Ekki spillti gestrisni Skotanna og verður gaman að hitta þá að ári á Ítalíu


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home