miðvikudagur, febrúar 11, 2009

Yndælt á Mývatni

Þetta var annasöm vika sem nú er að baki. Ég fór í stjórn eins fyrirtækis á mánudeginum fyrir hönd NSA, þyngdist um 100gr. í vigtunarkeppninni á miðvikudag, kláraði fyrstu fjárfestinguna í vinnunni á fimmdag og síðan flaug ég til Akureyrar og var ferðinni heitið til Mývatns að heimsækja hana (hverrar nafn má ekki nefna á blogginu). Hún hefur ásamt annarri stofnað nýsköpunarfyrirtæki sem ætlar sér að kynna tiltekna heilsumeðferð fyrir Íslendingum. Þrátt fyrir að meðferðin taki tvær vikur hið minnsta þá voru að þessu sinni í boði helgarnámskeið og mætti ég á það seinna. Aðstaðan er á hótel Reynihlíð við Mývatn. Ég hef ekki komið þangað síðan ég var unglingur svo það var tímabært að sjá staðinn og ekki hvað síst að prófa nýju jarðböðin. Átti ég þarna notalega helgi og slappaði vel af. Fór í Jarðböðin og nudd og mýktist allur enda ekkert borðað nema grænmeti fyrsta daginn og djúsar eftir það auk vatnsins sem aldrei svíkur. Nú er ég klár í árangur í næstu vigtun !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home