Tvöföld hamingja !!!
Það er orðið opinbert að hún Ásdís mín á von á sér í sumarlok. Við höfum ekki haft hátt um þetta en Ragnald, kærastinn hennar, er alveg að springa úr spenningi og setti strax á fésbókina sína að hann ætti sér leyndarmál, og það leið ekki á löngu þar sagan fór á kreik.
Hins vegar varð ég hissa þegar Ásdís hringdi í mig á föstudagsmorguninn þar sem ég var að byrja fund í vinnunni minni. Vegna þess hvað maður er illa þenkjandi hélt ég að það væri eitthvað að svo ég svaraði strax og spurði hvort svo væri því ég væri að byrja fund. Ásdís sagði ekkert að en hvort hún mætti segja mér aðeins. Ég auðvitað játti því og þá kom það: „Ég á von á tvíburum“. Þar sem ég var á fundi gat ég ekki tjá gleði mína eins og ég vildi þá sagði ég henni að ég myndi hringja strax og ég væri búinn á fundinum sem ég og gerði. Ásdís vildi fá að segja mömmu sinni þetta sjálf þegar mamma hennar kæmi til hennar á laugardeginum. Þess vegna þurfti að þegja í sólarhring en það var greinilegt á netinu í gærkvöldi að leyndarmálið var komið í ljós því það rigndi heillaóskum á fésbókinni á okkur öll. Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar og góðar óskir.
Ég hef lengi verið talinn með sérstaka kímnigáfu og það sannaðist rækilega í gær þegar við Ásdís vorum að spjalla á msn og hún var að sýna mér myndirnar úr sónarnum að þá var litlu krílunum gefin nöfn til aðgreiningar. Til skýringar er rétt að geta þess að tvíburar eru tvillinge á dönsku. Nöfnin voru því TV1 og TV2. Ég skellihló því þegar ég þýði þetta yfir á íslensku voru þetta stöð eitt og stöð tvö því TV2 er vinsæl sjónvarpstöð í Danaveldi. Svona skemmtir maður sér !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home