Þriðja sætið staðreynd
Ég kláraði átta vikna léttunarkeppni í skokkhópnum mínum síðasta miðvikudag. Ég sagði frá þessu á blogginu mínu þegar ég byrjaði en fannst það overkill að vera að endurtaka þá pósta á mínu bloggi. En núna var keppnin á enda og ég ætlaði aldeilis að láta að mér kveða. Ég fór til Glasgow og missti úr vigtun og hafði svo ekki náð af mér ferðafitunni þegar kom að næst síðustu vigtuninni. Nú var að duga eða drepast. Ég reyndi að vera á djúsum helgina fyrir vigtun og á vatni síðasta sólarhringinn. Ég meira að segja drakk ekkert vatn eftir hálf eitt og fór á stigvélina í Laugum fimmtán mínútum lengur en ég get best til að svitna sem mest. Þótt ég hafi náð að létta mig um 9
,30 kg. og 9,84% af upphafsþyngd minni þá dugði það skammt. Þær Stefanía og Bjargey voru duglegri en ég þótt ekki hafi munað miklu. Ég gríp hér á eftir í textann sem ég skrifaði fyrir Laugaskokksbloggið: "Það voru einbeittir keppendur sem mættu snemma á æfingu í dag því nú var að duga eða drepast. Það voru allir inni nema Pétur og HraHrafnhildur sem héldu út í frostið til að léttast. Fyrr um daginn höfðu keppendur farið að huga að tæknilegri útfærslu á því að sleppa við vigtun en hönnuður keppninnar var fljótur að senda póst á keppendur og benda á að ekki dygði að nota tölur síðustu viku því nú væri upphafsþyngdin notuð til grundvallar svo það væri affarasælast að mæta í vigtun. Svitinn bogaði af þeim sem voru í salnum og sást til Eggerts og Aðalsteins þar sem þeir læddust í gufu til að reyna að kreista fram síðustu svitadropana á meðan Gunnhildur, Kolla og Stefanía hömuðust á brettunum eins og þær væru göngunum í Kringlunni rétt fyrir útsölulok. 
Ólíkt fyrri vikum þá var blásið til verðlaunahátíðar í Laugacafé og var mættur fjöldi Laugaskokkara til að fylgjast með verðlaunaafhendingunni. Spennan lá í loftinu en samt var fljótur að berast orðrómurinn úr kvennaklefanum að Stefanía hefði verið búin að léttast svo mikið að venjulega vigtin hefði ekki dugað heldur hefði þurft að sækja bréfavigt til að geta náð tölu hjá henni. Eggert var sestur með tölvuna og tók við tölum um leið og þær bárust og fyllti út eyðublað fyrir úrslitin. Hann tók reyndar til máls í byrjun og bauð gesti velkomna og sagði keppendur klökka yfir mætingu Laugaskokkara. Það væri gaman að tilheyra svona góðum hóp, en útskýrði jafnframt að Göngudeildin hefði séð það fljótt að ekki dygði að keppa í hlaupum heldur hefði hún mesta möguleika í léttunarkeppni sem þessari. Nú væri komið að lokum og vildu keppendur minnast þess með veglegum hætti með verðlaunaafhendingu og kökum. Ekki nóg með það heldur rifjaði hann upp að meiningin hefði verið að fá forsetann og frú til að afhenda verðlaun og kynnti á sviðið Ólaf og Dorrit okkar Laugaskokkara, nefnilega Ívar og Jóhönnu.
Ívar tilkynnti fyrst um úrslitin í liðakeppninni, en þar sigruðu Bláberjabökurnar með minnsta mun 28,3% gegn 27,75% eða 0,57%. Tæpara gat það varla orðið. Jóhanna afhenti sigurliðinu gullpening og Kirsuberin fengu silfur. Þá var komið að einstaklingskeppninni og var tilkynnt um sætin í öfugri röð, þ.e. byrjað á áttunda sætinu en þar var Pétur með 3.06%, sjö var Kolla með 3.66%, sex var Gunnhildur með 4.39%, fimm var Hrafnhildur með 5.54%, fjögur var Aðalsteinn með 7,82%, þrjú var Eggert með 9.84%, tvö var Bjargey með 9.86%, þannig að sigurvegari Biggest Looser 2009 var Stefanía með 11.87%, sem er hreint ótrúlegur árangur því hún fékk einnig aukaverðlaun fyrir að vinna flestar vikur og hún léttist líka mest eða 9,35kg sem var meira í kg. en hjá þyngri keppanda eins og Eggert sem nartaði í hælana á henni með 9.30 kg svo keppnin var æsispennandi á allan hátt eins og sést á tölunum.
Síðasta tölfræðin vakti nokkra kátinu viðstaddra en það var sú staðreynd að keppendur misstu 45.2 kg. sem telst vera 0,95 þjálfari þegar notaður er Borghildarkvarðinn !!!"
Til skýringar er rétt að geta þess að þjálfarinn okkar í Laugaskokki heitir Borghildur og er aðeins 48 kg.
Það er frábært að vera í svona skemmtilegum hóp og þessi litli leikur okkar var ekki aðeins skemmtilegur og þjappaði okkur saman heldur er ég núna í betra standi en í mjög langan tíma. Það verður gaman að sjá hvernig mér tekst að halda þessu og bæta hlaupaástandið mitt.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home