sunnudagur, apríl 05, 2009

Morðgátan !!!

Ég var boðinn á árshátíð Hugvits líkt og endranær. Að þessu sinni var ákveðið að hafa Morðgátuþema og halda þetta á Hótelinu Rangá. Á miðvikudeginum mætti ég á undirbúningsfund þar sem ég fékk vita að ég væri „Sjón Milljón“ okurlánari með meiru. Ég veit ekki hvort daglega starfið mitt hafði eitthvað með þetta að gera en kímdi í laumi. Ég hafði 100 þús dollara í reiðufé og kröfur á tvær konur að auki, eða Ms. Simpson og Birtu Hafberg. Að auki var mér bent á að fá Illhuga Grimma til að aðstoða við innheimtuna og láta Mr. Madoff ávaxta fé mitt, en þar hefði ég betur notað tilvísun úr raunheimum til að ná betri árangri! Markmiðið mitt var að ávaxta fé mitt sem best á meðan leiknum stæði.

Ég var ennþá í blautum hlaupagallanum þegar ég kom að Hótel Rangá og varð skítkalt við að koma mér úr bílnum og inn í hús. Þess vegna var ekkert annað í stöðunni en að fara í heitt bað og ná úr sér hrollinum. Það tókst og þá var að koma sér í karakter. Ég hafði komið við í Partý búðinni á leiðinni út úr bænum fyrr um daginn og keypt mér plast hatt og staf sem áttu að gegna því hlutverki að gera mig líkari enskum okurlánara. Ekki veit ég hvort það tókst en allavega reyndi ég!

Fordrykkurinn hófst stundvíslega kl. 19:00 þar sem fólk var mætt og var gaman hvað allir höfðu lagt sig fram um að vera í búningi sem hæfði hlutverkinu. Gátan var svo formlega ræst og allir byrjuðu að ná markmiðum sínum, auk þess að reyna að finna út hver myrti Greifaynjuna. Þetta reyndist hinn skemmtilegasti leikur því fólkið var alltaf í hlutverki og þess vegna talaði fólk saman sem annars hefði ekki gert og svo var ekkert talað um vinnuna sem er auðvitað mikil hvíld á svona árshátíð.

Þegar matnum var lokið var skipt í sex eða sjö hópa og talið hversu mikið fé hafði safnast í hverjum hópi. Ég taldi mig hafa gert vel en Madoff hafði laumað að mér fölsuðum seðlum og reyndar í leiknum öllum svo félagar mínir í hópnum höfðu einnig orðið fyrir barðinu á honum. Ekki laust við að tilvísunin í raunheima væri nokkuð sterk! Ég giskaði ekki á réttan morðingja og man satt best að segja ekki hver það var því mér fannst hann svo ósennilegur. Ég hélt mig auðvitað við klassíkina og sagði eins og var „The butler did it“.

Að máltíð lokinni var skellt upp diskóteki þar sem ég dansaði drjúgt þar til klukkan sló eitt en þá fannst mér dagurinn orðinn nógu langur og gekk til náða. Frábær dagur, bæði í Kökuhlaupinu og Morgátunni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home