sunnudagur, apríl 05, 2009

Á jörðinni í Adrenalin garðinum

Ég fór á föstudaginn 27. mars í óvissuferð með starfsfólki Trackwell. Ferðinni var heitið á Nesjavelli á hótelið og svo Adrenalín garðinn. Við byrjuðum á hótelinu þar sem var farið yfir stefnumörkun og markmið ársins og svo niður að Adrenalín garðinum þar sem byrjað var á því að fara í sérstök belti og hjálm því þarna leikur fólk sér í töluverðri hæð. Þegar ég áttaði mig á þessu varð mér öllum lokið því ég er meira en lofthræddur. Ég fæ stjarfa þegar ég er í mikilli hæð og fæ ekki við neitt ráðið. Þess vegna tók ég þann kostinn að halda mig á jörðinni og aðstoða við að draga félaga mína upp í böndum. Það varð ekki betur séð og heyrt en að fólki fyndist þetta hin besta skemmtun og ekki laust við að maður fyndi hjörtun slá hraðar í brjóstum þeirra sem ýmist þeyttust í hringi í loftinu eða róluðu á miklum hraða í töluverðri hæð og lokst þeirra sem klifruðu upp mjóan staur og tóku síðasta skrefið upp á staurinn og stóðu þannig nánast í lausu lofti.

Að leiknum loknum fórum við aftur á hótelið og fengum fínan málsverð þar sem afrek dagsins voru rifjuð upp og rædd í þaula. Síðan var það rútuferð í bæinn í höfuðstöðvarnar þar sem starfsmenn fengu sér einn fyrir nóttina en ég dreif mig heim því það var mikil dagskrá hjá mér daginn eftir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home