Öðruvísi afmæli
Það var alltaf ljóst að fimmtugsafmælið væri staðreynd á þessu ári. Þar sem aðstæður í þjóðfélaginu eru miður skemmtilegar hafði ég enga ánægju af því að ætla að blása til einhvers fagnaðar, enda náðum við að fagna vel á síðasta ári þegar ég og dæturnar útskrifuðumst og frúin varð fimmtug. Þess vegna var ég feginn þegar okkur gafst kostur á að skreppa til Spánar og skipuleggja ferðalagið með þeim hætti að við værum í Köben á afmælisdaginn og þannig verið með Ásdísi og Ragnald.
Ég vaknaði því hálfri öld eldri á Spáni en fékk ráðrúm til að jafna mig þar sem flugið var ekki fyrr en 10:30. Við áttum þægilegt flug til Köben og tókum Metróinn út á Fredriksberg þar sem Ásdís og Ragnald tóku á móti okkur. Við settumst niður í smá snarl en síðan drifum við Ragnald okkur heim en þær mæðgur vildu aðeins rölta. Við Ragnald náðum að spjalla og sagði hann mér að hann hygðist biðja Ásdísar á laugardag en vildi formsins vegna láta mig vita. Ég sagði hana ráða sér sjálfa en sjálfum mér litist mér vel á ráðahaginn. Hafði hann skipulagt bónorðið í þaula og keypt óvissuferð í sælgætisgerð þar sem þau myndu læra að gera konfekt en síðan myndi Ásdís fá risastórt 20kg. páskaegg sem á væri hringur og áletrunin „Viltu giftast mér“. Fannst mér þetta aldeilis frábært og lofaði að þegja yfir þess.
Um kvöldið fórum við að borða á Peder Oxe sem er í uppáhaldi hjá okkur hjónum og á leiðinni þangað stoppuðum við fyrst á Square hótelinu því það voru Bjössi og Begga á ferð og náðum við að skála fyrir deginum með þeim áður en þau fóru á leikhús. Gaman að það skyldi takast. Þegar kom á uxann settumst við fyrst í kjallarann og biðum eftir Ragnald og síðan pabba hans og stjúpu. Síðan var haldið til stofu og við snæddum þetta fína nautakjöt. Áttum við ánægjulega stund saman og náðum að spjalla um heima og geima. Fannst mér sérstaklega sem Ragnald og Ásdísi væri létt því ég hafði það á tilfinningunni að þau hefðu verið pínu stressuð, sem var kannski vonlegt. Eftir skemmtilegt kvöld á uxanum var haldið heim til Ásdísar og Ragnalds þar sem við hjónin hentum okkur á sófann og hölluðum okkur um nóttina því við áttum flug á hádegi daginn eftir.
Um morguninn fór Ásdís í sónar en var komin til baka áður en við fórum svo við vorum nestuð með nýjustu myndum af tvíburunum TV1 og TV2 sem voru ótrúlegar og ekki að furða þótt Ásdís væri tekin að stækka með þessi myndarbörn inni í sér. Þegar kom út á flugvöll var maður minntur á ný á erfiða stöðu Íslands þegar máltíð á hamborgarabarnum fyrir okkur hjónin kostaði tíuþúsund kall, takk fyrir. Það er ekki að furða þótt mann þyrsti ekki í utanlandsferðir þessa dagana. Engu að síður var þetta skemmtilegt afmæli og langar mig að þakka öllum þeim sem sendu mér kveðju í tilefni dagsins.


2 Comments:
Elsku Pabbi
Thad var ædislegt ad fa ad eyda afmælisdeginum med ther.
Takk sömuleiðis Ásdís mín. Það var frábært að geta haldið upp á afmælið með þessum hætti.
Skrifa ummæli
<< Home