Glímt við golfið
Ég útskrifaðist af nýliðanámskeiði Golfklúbbsins Keilis í þarsíðustu viku og var það á spilanámskeiði þar sem okkur voru sýnd handtökin á æfingavellinum og síðan áttum við nýliðarnir að spreyta okkur sjálf. Ég hafði reyndar misskilið dagsetningu æfingarinnar og mætt kvöldið áður og dreif mig 9 holurnar sem var fín æfing og því í lagi að fara aftur.
Ekki er ég að ná tökum á íþróttinni og það sannaðist heldur betur í vikunni þegar ég fór tvisvar á Húsatóftarvöll í Grindavík. Þetta var á köflum hreint skelfilegt og ég er bara ekki að geta slegið út á vellinum eins og ég slæ á mottunni á æfingasvæðinu.
Nú er bara að spila Sveinskotsvöllinn í Hafnafirðinum þangað til eitthvað fer að gerast !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home