laugardagur, janúar 02, 2010

Himinlifandi með Miðnæturhlaup (23-6)

Þá var komið að Miðnæturhlaupinu sem var að þessu sinni þann 23. júní. Ég var nokkuð sprækur enda nýbúinn að létta mig svo það var von til þess að geta náð sæmilegu hlaupi. Það var líka hughreystandi að það var notaður flögutími svo það skipti ekki öllu máli hvenær maður komst af stað, ólíkt fyrri hlaupum. Það var eins gott því að var svo mikill þátttakendafjöldi að það var uppselt í hlaupið !!!

Ég var mættur snemma þannig að það voru laus númer og ég tók fyrir Stefán sem hljóp líka. Ég hefði betur skráð Kollu því hún kom seint og þurfti að sæta því að vera á biðlista og fékk ekki númer fyrr en nokkrum mínútum fyrir hlaup. Við vorum því aftarlega hlaupafélagarnir en eftir að ég komst yfir mottuna náði ég fljótt að halda mér nálægt 5:00 og meira að segja voru nokkrir kílómetrar á 4:47 en líka 5:06. Ég fann Stefán í 4 km og fór framúr en hann var á ágætis tíma. Þannig náði ég að halda haus og keyra þetta jafnt í gegn og náði besta tímanum mínum síðan 2003 eða 48:27 !!!

Fór svo í laugina á eftir með Göngudeildinni sem átti góðan dag með góðum bætingum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home