laugardagur, janúar 02, 2010

Glæsilegur Gullsprettur (13-6)

Ég var ekki fyrr sloppinn úr Detox-inu á föstudeginum en ég var búinn að fara í grillveislu hjá Klakinu og svo var það Gullspretturinn á laugardeginum og við Laugarvatn. Ég var að fara þetta í fyrsta sinn og vissi lítið annað en vegalengdina og að ég ætti að vera í gömlum skóm !!!

Ég varð samferða Kollu og var það eins gott því hún fékk það hlutverk þegar komið var austur að finna út hvar hlaupið ætti sér stað. Þegar það var fundið og skráningin að baki kom í ljós að fjöldi Laugaskokkara var á staðnum. Mér leist ekki meira en svo á blikuna þegar ég sá að það þurfti að vaða helling og síðan að dröslast áfram um mýrar og móa. Ég ákvað að reyna að hafa þetta öruggt og hljóp með Ingu og Kollu því þær höfðu gefið það út að ætla ekki að geysast um of.

Þetta gekk allt eftir og höfðum við gaman af því að þeytast þarna um mýrar og móa og óðum oftar en ekki upp fyrir mitti svo þetta var svolítil svaðilför. Allt gekk þetta vel og ekki spillti að fá hverabrauð og reyktan silung á eftir. Síðan skelltu sér allir í pottinn þar sem var vel troðið. Laugaskokkarar höfðu margir hverjir tjaldað en ég hélt heim á leið, nokkuð sæll með ævintýrið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home