laugardagur, janúar 02, 2010

Afastelpur fæddar (7-8)


Við vorum búin að vera spennt að bíða eftir að Ásdís fæði tvíburana og áttum von á að það gæti orðið eftir miðjan ágúst. Hins vegar veiktist hún og fór strax að láta athuga sig og kom í ljós að hún var komin með meðgöngueitrun og líklega þyrfti hún að verða sett af stað. Hún (hvers nafn má ekki nefna á blogginu) dreif sig út á fimmtudeginum og ég ætlaði fyrst að koma á laugardeginum en ákvað á fimmtudeginum að drífa mig morguninn eftir því það leit út fyrir að hlutirnir myndu frekar gerast fyrr heldur en síðar.

Þegar ég lenti á hádegi í Kaupmannahöfn beið mín SMS þar sem sagði að ég væri orðinn afi tveggja telpna. Þegar ég náði sambandi við ömmuna kom í ljós að Ásdís hafði verið orðin mjög veik og því var drifið í að taka telpurnar með keisaraskurði. Við komum síðan síðdegis og fengum að líta stelpurnar okkar augum og voru litlu krílin alveg ótrúlega smá en kná og eins og sést á myndinni voru afinn og amman að finna sig strax í nýja hlutverkinu.

Við vorum síðan nokkra daga í Köben og hjálpuðum nýju foreldrunum með börnin því Ásdís hafði greinilega orðið mjög veik og var tíma að jafna sig. Þess vegna þótti okkur gott að geta verið hjá henni og í það minnsta veitt henni móralskan stuðning. Það þarf ekki að taka fram að við erum himinsæl með þessa viðbót við fjölskylduna okkar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home