Jólaboð í hlaupahópnum
Þótt við v
ærum orðin meira og minna hölt í Göngudeildinni þá höfðu Stefanía og Aðalsteinn ákveðið með löngum fyrirvara að bjóða okkur í Julefrokost 5. des. eftir æfingu. Ég skrifaði eftirfarandi texta í hlaupadagbókina um þessa æfingu:„Síðasta hlaup í recovery viku sem var búin að vera ósköp þreytandi. Það vantaði vel upp á kílómetratölu vikunnar en þar sem við vorum svo spennt að komast í jólafrokostinn hjá Stefaníu og Aðalsteini og Kolla þurfti að skila af sér bakvaktarsímanum, þá var ákveðið að hafa þetta ekk
i of strembið. Enduðum fljótlega fjögur, þ.e. ég, Hrafnhildur, Kolla og Gunnhildur en sóttum þær systur, Kristínu og Ingigerði smá stund í miðbænum en töpuðum þeim þegar var komið vestur í bæ. Við fórum í gegnum miðbæinn til baka, upp Laugaveg en Borgartúnið hefðbundna leið utan smá krók á Teigunum til að ná upp í 10 km. Síðan tók við ótrúleg veisla í góðum félagsskap. Frábær dagur. Óskandi að eiga þá svona fleiri :-)."
Það var orða sönnu því veisluborðið var ótrúlega danskt og veitingar, bæði í föstu formi og fljótandi í stíl. Áttum við góða stund saman og veitti ekki af í öllu mótlætinu í hlaupunum.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home