sunnudagur, janúar 03, 2010

Afastelpur í heimsókn (14-11)


Ég fór á tvær ráðstefnur í Stokkhólmi og nýtti mér tækifærið til að koma við á heimleiðinni í Köben til að heimsækja afastelpurnar mínar. Þegar nær dró áttaði amman sig á því að með þessu var hægt að fá Ásdísi heim með stelpurnar því ég gat fylgt henni heim og ein vinkonan var síðan á leið til Danmerkur rúmri viku síðar svo þetta virtist allt gráupplagt. Ég var mættur á miðvikudagskvöldið 11. nóv til Köben. Notaði tímann til að passa stelpurnar á nóttunni og sinna öðrum málum á daginn. Náði meira að segja að setjast niður með Eyþóri á Bláa Hundinum og fá mér einn kaldan.

Síðan var haldið heim til Íslands á laugardeginum og var það heldur betur ævintýri því bókanirnar okkar voru í klúðri og eftir að hafa ætt um allan völl og meira segja látið hringja til Íslands þá fengum við brottfararspjöldin 35 mínútum fyrir brottför. Við æddum í gegnum öryggishliðið og út í brottfararhliðið þar sem verið var að opna vélina fyrir farþegum og við fengum að koma okkur fyrir. Vélin var smekkfull svo Ásdís sat í miðjusæti í röð 19 og ég eins í röð 26. Algjörlega glatað. Það bjargaði miklu að flugfreyjurnar voru mjög almennilegar og sáu til þess að afinn fékk pela með hitaðri mjólk í hendur til að gefa Helene í flugtaki. Síðan þegar við vorum komin á loft þá var hægt að rýma sætið við hliðina á Ásdísi og vorum við því saman. Flugið gekk ótrúlega vel enda svaf Helene nær allan tímann, en systir hennar var öllu fjörugri.

Þegar heim var komið var farið til langafa og langömmu og síðan var straumur vinkvenna til að líta litlu prinsessurnar augum. Við lögðum áherslu á að Ásdís næði að hvíla sig á nóttunni og því tóku afi og amma sitthvora vaktina, annað hvort 00:00-04:00 eða 04:00-07:00. Var ekki laust við að afinn væri orðinn svolítið lúinn eftir heimsóknina enda lítið sofið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home