sunnudagur, janúar 03, 2010

Svínsleg flensa (6-18-10)

Þegar ég hef verið að æfa mikið þá fer ekki hjá því að maður gangi stundum nærri sér og fái einhverja pest, þá aðallega hálsbólgu og eitthvað kvef. Ég var ekki alveg með sjálfum mér á mánudeginum 5. okt og um kvöldið fékk ég svo svæsna hálsbólgu að ég var algjörlega út úr heiminum næstum fimm daga. Á sömu vikum geysaði svínaflensan um allar jarðir og því freistandi að halda því fram að ég hefði fengið þessa pest, en þar sem allir heilbrigðisstarfsmenn höfðu nóg að gera þá fór ég aldrei til að láta athuga þetta en fannst að fyrst ég lá meira og minna í hálfan mánuð þá hljóti að hafa verið um skyldan sjúkdóm að ræða.

Ég þurfti að vera með kynningu fyrir stjórn eins lífeyrissjóðsins á fimmtudeginum í vikunni eftir að ég lagðist og hélt ég væri í lagi því ég var búinn að liggja í 9 daga en það var öðru nær. Ég var meira og minna andlaus, hóstandi og sjúgandi upp í nefið, svo ég fann til með áheyrendum mínum. Gaf ég þess vegna út þá yfirlýsingu að ég væri að stíga upp úr svínaflensu. Það sem passaði ekki var að ég var ekki með mikinn hita heldur alveg frá í öndunarfærum, hálsi og með blóðþrýsting og púls sem var alveg út úr korti. Þess vegna get ég ekki með óyggjandi hætti haldið því fram að ég hafi fengið svínaflensu en ég get fullyrt að hér var a.m.k. um svínslega flensu að ræða.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home