Kynnisferð til Kanada (Toronto 27-8)
Ég hlakkaði mikið til að hitta félaga mína í doktorsnáminu, en við höfðum náð því síðustu tvö ár að hittast og gera eitthvað skemmtilegt. Þetta byrjaði hérna á Íslandi og svo var hist í Amsterdam í fyrra. Nú var komið að Toronto í Kanada. Ég hafði komið einu sinni til Kanada en aldrei til Toronto. Tom Corr, félagi okkar, skipulagði þetta af miklum myndarbrag. Ég kom því þannig fyrir að ég og Eyþór félagi minn úr náminu voru samferða vestur og í sætum hlið við hlið, sem var ekki sjálfgefið því hann var að koma í tengiflugi frá Köben. Það var því glatt á hjalla og þegar við lentum í Toronto var haldið beint á veitingastað til að hitta hópinn.
Á föstudeginum var byrjað á að fara efst í svokallaðan CN tower sem var lengi með hæstu byggingum heims og útsýnis frábært og eins gott að við fórum á þessum tíma því daginn eftir var komin þoka. Deginum var eytt í túristastrætó að skoða borgina og fróðlegt að sjá. Um kvöldið var svo snæddur kvöldverður á bát sem sigldi um Ontario vatn. Ágætis tilbreyting en lítið að sjá í mykrinu.
Á laugardeginum var keyrt að Niagara on the Lake, sem er gamaldags bær rétt hjá fossunum miklu. Þar eyddum við tíma í að skoða og borða en svo var haldið að fossunum. Þar fórum við í bátsferð alveg að fossunum og var það alveg frábært. Um kvöldið var svo snætt á vínekru þar sem fyrst var farið út að skoða vínviðinn, þá vínsmökkun og loks snætt á frábærum veitingastað á ekrunni þar sem mat og vínseðill áttu mikinn samhljóm. Ekki ódýrasta máltíð sem ég hef snætt en alveg frábær.
Á sunnudeginum var okkur boðið í brunch hjá einum úr hópnum. Síðan var ég keyrður í ToysRUs til að kaupa stól handa tvíburunum en ég og Eyþór enduðum niður í bæ og fengum okkur einn kaldan áður en kominn var tími fyrir mig að drífa mig heim á leið en Eyþór ætlaði að vera degi lengur.
Hreint frábær ferð sem einkenndist af góðri skipulagningu og frábærum félagsskap.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home