Síðbúið fimmtugsafmæli (17-10)
Danshópurinn minn hafði haft á dagskrá að hittast en það var aldrei helgi þar sem allir voru lausir. Eftir miklar póstsendingar var loksins hægt að finna dag þar sem allir gátu hist, eða 17. október. Þegar kom síðan að þessum ágæta degi var ég ennþá slappur og þar sem ég var búinn að vera svo mikið frá vinnu, vildi ég bara vera í rúminu til mánudags og sjá hvort ég myndi ekki skána. Það varð því úr að frúin fór ein til Óla og Hlífar þar sem hópurinn ætlaði að koma saman. Stuttu eftir að frúin mín kom á staðinn fékk ég upphringingu og þar með að vita að það hefði orðið heilmikið spennufall í samkvæminu því þetta hefði átt að vera óvæntur fimmtugsafmælisfagnaður mér til heiðurs en afmælisbarnið vantaði.
Það var því ekki annað að gera en hysja upp um sig buxurnar í orðsins fyllstu og drífa sig á staðinn. Þegar ég kom var mér tekið með kostum og kynjum, lesinn upp ljóðabálkur sem Begga orti til mín og síðan fékk ég afhenta flotta gjöf, styttu af hlaupaskó (heimagerð) og peningatré. Mér var hlíft við 50 köllunum og fékk 500 kalla í staðinn og var ég feginn því hitt hefði þýtt slagsíðu.
Ég varð aldeilis klökkur við allt þetta tilstand og þakkaði vinum mínum kærlega fyrir þessa óvæntu uppákomu og var þeim alveg sammála um að hún hefði ekki tekist eins án mín :-)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home